13.6° - NNA 5 m/s

585 0050

Book Tee Times

Ásta Sigríður Egilsdóttir er Íslandsmeistari 12 ára og yngri í holukeppni

Við eignuðumst Íslandsmeistara í dag þegar Ásta Sigríður Egilsdóttir sigraði 12 ára og yngri flokk stúlkna á Íslandsmót unglinga 2026 í holukeppni fór fram á Selfossi.

Fjórar stúlkur tóku þátt í flokki 12 ára og yngri. Keppni hófst með höggleik þar sem þeim var raðað í sæti fyrir útsláttarkeppnina.

Til úrslita léku Ásta Sigríður Egilsdóttir og Edda María Hjaltadóttir. Ásta Sigríður vann úrslitaleikinn 3/2 og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni 2026.

Ásta Sigríður var önnur eftir höggleikinn. Hún mætti Örnu Dís Hallsdóttur í undanúrslitum og vann leik þeirra 4/3.

Edda María var efst eftir höggleikinn og mætti Thelmu Clausen Halldórsdóttur í undanúrslitum. Edda María hafði betur, 3/2, og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum.

Arna Dís varð í þriðja sæti eftir 3/1 sigur gegn Thelmu í leiknum um bronsið.

Verðlaunasæti:

  1. Ásta Sigríður Egilsdóttir, GO
  2. Edda María Hjaltadóttir, GKG
  3. Arna Dís Hallsdóttir, GKG

Hér má sjá rástíma og úrslit allra leikja

Stúlkur 12 ára og yngri knockout-bracket sýnir keppnishring með nöfnum Edda María Hjaltadóttir, Thelma Clausen Halldórsdóttir, Ásta Sigurðúr Egilsdóttir og Arna Dís Halldórsdóttir og stig með sigrum eins og 3/2 og 4/3
Three young golfers pose with trophies in front of a blue sponsor backdrop at an awards ceremony.
< Fleiri fréttir