• 1. Object
  • 2. Object

4.5° - SA 5.4 m/s

585 0050

Book Tee Times

Auglýst eftir framboðum í stjórn GO skv. lögum félagsins

Skilafrestur framboða er til fimmtudagsins 16. nóvember 2022.

 
Ágætu félagar.

Kjörnefnd Golfklúbbs Odds (GO) auglýsir eftir framboðum til stjórnar klúbbsins fyrir aðalfund hans sem áætlað er að halda fimmtudaginn 30. nóvember 2023 kl. 20:00 í golfskála GO á Urriðavelli.

Á aðalfundi 2023 verður kosið til eftirfarandi embætta en allir sitjandi stjórnarmenn gefa kost á sér í embætti áfram.
– formanns til eins árs
– tveggja stjórnarmanna til tveggja ára
– tveggja varamanna til eins árs.

Framboðsfrestur er til 16. nóvember næstkomandi klukkan 20:00.

Þeir sem hafa áhuga á að gefa kost á sér í stjórnarkjör skulu tilkynna framboð sitt til skrifstofu GO á netfangið skrifstofa@oddur.is

Kjörnefnd GO,
Gunnar Viðar
Kristjana S. Þorsteinsdóttir
Guðmundína Ragnarsdóttir

< Fleiri fréttir