• 1. Object
  • 2. Object

5.6° - SSA 1.6 m/s

585 0050

Book Tee Times

AUGLÝST ER EFTIR FRAMBOÐUM TIL STJÓRNAR GO

Skilafrestur framboða er til fimmtudagsins 19. nóvember 2020

Ágætu félagar.

Kjörnefnd Golfklúbbs Odds (GO) auglýsir eftir framboðum til stjórnar klúbbsins fyrir aðalfund hans sem verður haldinn fimmtudaginn 3. desember 2020 kl. 20:00 í golfskála GO.

Á aðalfundi 2020 verður kosið til eftirfarandi embætta
– formanns til eins árs
– tveggja stjórnarmanna til tveggja ára
– varamanns til eins árs.

Framboðsfrestur er til 19. nóvember næstkomandi klukkan 20:00.

Þeir sem hafa áhuga á að gefa kost á sér í stjórnarkjör skulu tilkynna framboð sitt til skrifstofu GO á netfangið skrifstofa@oddur.is. Þess má geta að núverandi stjórnarmenn hafa allir gefið kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn.

Kjörnefnd GO,
Guðmundína Ragnarsdóttir
Gunnar Viðar
Kristjana S. Þorsteinsdóttir

< Fleiri fréttir