• 1. Object
  • 2. Object

3.3° - SSA 2 m/s

585 0050

Book Tee Times

Auka golfleikjanámskeið 13. – 17. júlí

Vegna góðrar þátttöku hefur Golfklúbburinn Oddur og MP Golf ákveðið að bæta við einu golfleikjanámskeiði fyrir börn á aldrinum 6-12 ára í sumar. Námskeiðið fer fram 13. – 17. júlí en námskeiðin hafa verið vel sótt í sumar og hafa heppnast einkar vel.

Verð á námskeiðið er kr. 12.000,- Við vekjum sérstaka athygli á því að félagsmenn í GO njóta sérstakra kjara fyrir börn sín og barnabörn og kostar námskeiðið aðeins kr. 9.500,- MP Golf sér um kennslu á námskeiðinu og þar fá krakkarnir að kynnast golfíþróttinni í gegnum SNAG sem hefur algjörlega slegið í gegn og hjálpar byrjendum að ná fyrr tökum á íþróttinni. Golfleikjanámskeiðið fer fram frá kl. 09:00 – 12:00 á mánudag til fimmtudag og á föstudeginum er spiladagur á Ljúflingi.

Skráning er hafin og er lágmarksþátttaka í námskeiðinu 10 þátttakendur.

 

Skráning fer fram með því að fylla út eyðublaðið hér að neðan:

< Fleiri fréttir