10.2° - VNV 2 m/s

585 0050

Book Tee Times

Breytt fyrirkomulag rástímabókana á Urriðavelli frá 7. september

Frá og með 7. september höfum við stillt Urriðavelli upp sem tveimur 9 holu golfvöllum til að auka aðgengi að rástímum. Við munum opna fyrir bókanir á fyrri 9 og seinni 9, þann 24. ágúst. Á meðan þessi umskipti eiga sér stað verða ekki leyfðar nema 2 bókanir á einstakling á hvorn völl ( fyrri 9 og seinni 9), en áfram hafa kylfingar óbreytta heimild til að bóka á 18 holu völlinn ( 4 rástíma) meðan hann er í gildi. Við skoðum svo þegar nær dregur umskiptum hvort fjölgað verður í bókunar heimild á rástíma. 

Í rástímabókun munu birtast þrír vellir fram að umskiptum sem gerast eftir Sunnudaginn 6. september en eftir þá helgi ættu kylfingar einungis að sjá Golfvellir Urriðavöllur Fyrri 9 og Golfvellir – Urriðavöllur Seinni 9.

Eftir umskiptin verður að sjálfsögðu hægt að spila 18 holur en þá er nauðsynlegt að bóka sig á báða velli, eigi kylfingur ekki bókað á seinni helming vallarins eru engin réttindi til staðar varðandi aðgang og ekki tryggt að hægt sé að spila nema 9 holur.

Athugið að þeir sem eiga bókaða rástíma hafa fullan forgang á sinn tíma sama hvoru megin það er. Ef kylfingur/ar missa af sínum bókaða rástima fyrir seinni 9 holur dagsins eiga þeir ekki forgang á þann hluta vallarins sem eftir á að leika og gætu þurft að hætta leik. 

Hægt er að leita til Vallarþjónustu, afgreiðslu Urriðavallar eða á skrifstofu ef einhver vandræði skapast en til að allt gangi upp þarf að halda uppi góðum leikhraða og virða þessar reglur.

 

< Fleiri fréttir