-7.9° - ANA 4 m/s

585 0050

Book Tee Times

Félagsstarf

Það er vissulega stór þáttur í starfi íþróttafélags að halda uppi félagsstarfi fyrir félagsmenn.

Í golfklúbbnum Oddi er lögð áhersla á gott sumarstarf sem saman stendur af mótahaldi og skemmtanahaldi í kringum innanfélagsmót eins og meistaramót, bændaglímu og lokamót mótaraða og félagsstarfs.

Kvennanefnd GO heldur uppi góðu starfi fyrir konur í Golfklúbbnum Oddi á hverju ári og hægt að sjá upplýsingar um það starf á síðu kvennanefndar hér á oddur.is og einnig á facebook, (konur í golklúbbnum Oddi)

Aðstaða til íþróttastarfs er til fyrirmyndar á vallarsvæði Golfklúbbsins Odds þar sem kylfingar geta nýtt tvo golfvelli, góðar púttflatir og æfingasvæði fyrir stutta spilið ásamt því að æfingabásar á Lærlingi standa kylfingum opnir allt árið. 

Ef þú lesandi góður hefur mikinn áhuga á að lífga upp á félagsstarfið með aðkomu að því eða kasta fram hugmyndum hvetjum við þig til að vera í sambandi við skrifstofu Odds í eigin persónu eða með því að senda tölvupóst á skrifstofa@oddur.is