• 1. Object
  • 2. Object

10° - SSA 4.6 m/s

585 0050

Book Tee Times

Forkeppni fyrir holukeppni GO á sunnudag

Sunnudaginn 31. maí fer fram forkeppni fyrir holukeppni Golfklúbbsins Odds sumarið 2015. Ef það eru ekki fleiri en 64 skráðir í forkeppnina á sunnudag þá fer mótið ekki fram og þeir sem skráðir eru fara áfram og verða dregnir saman af mótanefnd.

Skráning er í fullum gangi og lýkur föstudagskvöld, kl. 20:00.

Rástímar eru frá  kl. 8.00 – 11.00. 

Leikið er punktakeppni með forgjöf hámark 24 karlar 28 konur.

Þátttökugjaldið í holukeppnina er 2.800 kr. 

Keppendur spila í mótinu eins og hefðbundið væri en þegar mótinu er lokið raðar mótanefnd keppendum inn í holukeppni miðað við fjölda þáttakenda og miðar þar við 64/32/16/8/4/2 þátttakendur eftir því sem við á.  

(Ef það eru 70 skráðir komast 64 efstu í 1. umferð) 

LEIKDAGAR Í HOLUKEPPNI VERÐA SVO EFTIRFARANDI – Leik skal lokið fyrir lok dags eftirfarandi daga:

Fimmtudaginn 4. júní 64/32 manna úrslit.
Fimmtudaginn 12. júní 16/32 manna úrslit
Þriðjudaginn  16. júní – 8/16 manna úrslit
Mánudaginn   22. júní – 8 manna/undanúrslit
Sunnudaginn 28. júní – undanúrslit/úrslit
Fimmtudaginn 2. júlí úrslit ef til kemur

Staðfesting á leikdögum verður staðfest hér og á heimasíðu GO
þegar þátttaka liggur fyrir.

KEPPENDUR GETA EKKI FENGIÐ LEIKTÍMA BREYTT
Mæti mótherji / keppendur ekki til leiks tapast leikurinn

REGLUR OG FYRIRKOMULAG

1.gr
Mótið skal halda árlega og hefjast með forkeppni sem er 18 holu punktakeppni með fullri forgjöf. Hámarks leikforgjöf kvenna skal þó vera 28, bæði í forkeppninni og í holukeppninni og karla 24, bæði í forkeppninni og holukeppninni. Forkeppnina má spila sem hluta af öðru móti ef mótanefnd ákveður svo.

2.gr
Þeir 64/32 keppendur sem ná bestum árangri í forkeppninni taka þátt í holukeppni með forgjöf, þar sem keppt er um titilinn Holumeistari GO.
Verði tveir eða fleiri keppendur í forkeppninni jafnir á sama skori ræðst röð keppenda eins og kveðið er á um í 5. grein Móta- og keppendareglna GSÍ. (sjá neðar)

3.gr
Aðeins kylfingar með gilda EGA forgjöf (forgjöf merkt með * á www.golf.is (Opnast í nýjum vafraglugga) ) hafa keppnisrétt í holukeppninni.

4.gr
Leikmaður ræður af hvaða teig hann leikur og tekur leikforgjöf hans mið af því, þó með þeim takmörkunum að aldur og forgjöf ræður teig skv. reglugerðum. Nota skal grunnforgjöf eins og hún er, þegar leikur fer fram við útreikning leikforgjafar, þó með hámarksleikforgjöf skv. 1.gr. Forgjöf nýtist í samræmi við forgjafarröð vallarins. Sé annar leikmaður t.d. með 10 í forgjöf en hinn 18, fær forgjafarhærri leikmaðurinn forgjöf á hinn leikmanninn á holum 1-8 í forgjafarröð.

5.gr
Í hverri umferð í holukeppninni eru leiknar 18 holur. Leika skal til úrslita í hverjum leik. Verði leikmenn jafnir eftir 18 holu leik skal leikið áfram og fyrsta unnin hola ræður úrslitum.

6.gr
Mótanefnd ákveður lokafresti til að ljúka hverri umferð holukeppninnar og tilkynnir það á heimasíðu og á auglýsingatöflu í golfskála. Keppendur í holukeppni koma sér saman um hvenær þeir kjósa að leika hverja umferð fyrir þann lokafrest. Geti keppandi ekki leikið, eða mæti hann ekki til leiks á tilskildum tíma hefur hann tapað leik sínum. Mæti hvorugur keppenda til leiks fyrir lokafrest til að ljúka umferð falla þeir báðir úr keppninni. Ef leikmenn geta ekki komið sér saman um leiktíma, geta þeir leitað til mótstjóra um milligöngu. Mótstjórn ákveður þá leiktíma sem að óbreyttu ef ekki er auglýstur sérstaklega skal vera klukkan 10:00 á auglýstum lokadegi umferðar. Sé rástími klukkan 10:00 ekki laus skal næsti lausi rástími verða fyrir valinu.

7.gr
Sigurvegari í holukeppninni ár hvert hlýtur titilinn Holumeistari GO og fylgir titlinum farandgripur. Einnig hlýtur holumeistarinn verðlaunagrip til eignar.
Holumeistari ársins fær afhentan farandgripinn í verðlaunaafhendingu meistaramóts GO.

< Fleiri fréttir