• 1. Object
  • 2. Object

10° - NNV 5.5 m/s

585 0050

Book Tee Times

Fyrirsæturnar sigruðu liðakeppni GO annað ári í röð

Það var hörkuspenna og skemmtilegt lokamót á lokadegi í liðakeppni GO í ár. Lokamótið var leikið með fyrirkomulaginu 2- 6 manna betri bolti þar sem leitað var að besta skori liðs á holu og því gat góður og samstilltur dagur skilað góðu skori.

Liðið Þorparar náði að stilla strengi dagsins best og skilaði skori upp á 50 punkta en önnur lið voru skammt undan og lið Sigurvegaranna skilaði 49 punktum og liðið Fyrirsæturnar skilaði sér í þriðja sæti og tryggði sér þannig efsta sætið í liðakeppninni í ár og það annað árið í röð.

Fyrirsæturnar í ár voru Björg Þórarinsdóttir, Dídí Ásgeirsdóttir, Bergþóra María Bergþórsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Ása Finnsdóttir og Hervör Lilja Þorvaldsdóttir. Þær voru sannarlega vel að sigrinum komnar í ár en þær náðu fyrsta, öðru og þriðja sæti í þremur af 6 mótum sumarsins og þannig flestum punktum en þrjú bestu mót sumarsins töldu hjá hverju liði. Heildarúrslit eru hér neðar í skjali og einnig úrslit úr síðasta mótinu hér aðeins neðar. VIð þökkum öllum innilega fyrir þátttökuna í ár og vonum að við náum að halda mótið að ári með sama fjölda keppnisliða en í ár var algjör metþátttaka. Við færum styrktaraðilum mótsins einnig sérstakar þakkir en án þeirra væri þessi stóra umgjörð ómöguleg en heildarverðmæti vinninga er yfir 2,200,000 þegar allt er talið sem skiptist á c.a. 15 lið.

Frá vinstri Sigríður Ólafsdóttir, Ása Finnsdóttir, Hervör Lilja Þorvaldsdóttir, Björg Þórarinsdóttir, Bergþóra María Bergþórsdóttir og Dídí Ásgeirsdóttir
urslit-vinnuskjal

< Fleiri fréttir