• 1. Object
  • 2. Object

2.7° - SSA 2.7 m/s

585 0050

Book Tee Times

GO tekur við nýjum félögum

Golfklúbburinn Oddur tekur um þessar mundir við umsóknum kylfinga um inngöngu í klúbbinn. Golfklúbburinn Oddur hefur yfir að ráða einu glæsilegasta golfsvæði landsins og er Urriðavöllur af mörkum álitinn einn besti golfvöllur landsins, ef ekki sá besti.

Hægt er að sækja um aðild að GO inn á heimasíðu klúbbsins, www.oddur.is. Nýir félagar greiða inntökugjald sem nemur kr. 15.000. Athygli er vakin á því að með hverju inntökugjaldi fylgja þrjú flatargjöld og því getur félagi boðið vinum eða vandamönnum á Urriðavöll.

Við minnum jafnframt á hina vinsælu Ljúflingsaðild sem kostar aðeins kr. 37.000 per. starfsár. Félagar í Ljúflingsaðild eru fullgildir félagar í Golfklúbbnum Oddi með leikheimild á Ljúflingi og geta leikið á vinavöllum GO auk þess að geta leikið einn hring á hverju sumri á Urriðavelli.

Sækja um aðild í Golfklúbbinn Odd

Félagsgjöld GO 2016 Gjald
Einstaklingar 20-67 ára
Einstaklingar 67 ára og eldri
Börn og unglingar að 20 ára aldri
Systkinaafsláttur:
– Tvö systkini
– Þrjú systkini
– Fjögur systkini
Inntökugjald
Nýtt félagsskírteini
103.000
75.000
31.000
———
42.000
53.000
64.000
15.000
500

< Fleiri fréttir