• 1. Object
  • 2. Object

1.7° - SA 3.6 m/s

585 0050

Book Tee Times

Golfhermamót nr. 2 í Golfhöllinni næstkomandi laugardag 12. mars

Við endurtökum leikinn…. eða mótið öllu heldur. Það var flott mæting á fyrsta mótið þar sem um 50 kylfingar mættu og núna viljum við fylla Golfhöllina og í boði eru rástímar klukkan 10:00 og 13:00, þrír saman í hermi og skráning á golfbox.

Við eigum hermana milli 10 – 13 og 13 – 16, hægt að bóka sig á annað hvort 10:00 eða 13:00 tímann

Þátttökugjald einungis 2500 á mann og greiðist við skráningu.
Athugið að þeir sem ætla að vera saman skrá sig saman í holl í golfbox. Smelltu á þann tíma sem hentar.

Bóka klukkan 10:00

Bóka klukkan 13:00

ATHUGIÐ AÐ TIL AÐ SKRÁ ANNAN LEIKMANN Á AÐ SETJA INN GOLFBOXNR Á ÞENNAN HÁTT 
3-9999, þ.e. klúbbnr. GO (3) og félagsnúmer kylfings. 

Við notum 2/3 af golfbox forgjöf leikmanna, hámarksforgjöf verður 28 hjá konum og 24 hjá körlum.

Spilaður verður golfvöllurinn BEAR DANCE GOLF CLUB stillingar verða eins í öllum hermum, enginn vindur, flatir mjúkar, pútt sett á auto-pútt.  

Við miðum við 3 saman í hermi og hvetjum ykkur til að mæta tímalega.

Við veitum verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í karla og kvennaflokki. 

Velkomið að hafa samband við skrifstofu GO ef þið þurfið aðstoð við skráningu í síma 5850050 eða á netfangið skrifstofa@oddur.is

< Fleiri fréttir