• 1. Object
  • 2. Object

6.6° - NNV 3.8 m/s

585 0050

Book Tee Times

Golfleikjanámskeið barna – skráning hafin

Hér eru dagsetningar fyrir námskeiðin í sumar

Námskeið: 7. – 11. júní (5 dagar) 
Námskeið: 14. – 18. júní (4 dagar)
Námskeið: 21. – 25. júní (5 dagar)
Námskeið: 28.júní. – 2. júlí (5 dagar)
Námskeið: 12. – 16. júlí (5 dagar)  
Skráning á golfleikjanámskeið

Golfkennsla á golfleikjanámskeiðum GO er í höndum PGA kennaranna Phill Hunters og Rögnvaldar Magnússonar og með þeim verða nokkrir aðstoðarmenn í sumar. Skráning á námskeiðin er í gegnum vefsíðuna oddur.felog.is þar sem skrá þarf sig inn með rafrænum skilríkjum. Athugið að ef stofnuð er greiðsla í heimabanka birtist það í nafni greiðslumiðlunar. 

Afsláttur er fyrir börn félagsmanna og barnabörn og til að virkja afslátt (3000 kr) þarf að slá inn kóðann Oddur við greiðslu. Athugið að einungis forráðamaður getur skráð barn á námskeið í greiðslukerfinu en foreldri barns getur skráð inn nýjan forráðamann í Nóra kerfinu ef t.d. afi eða amma eiga að skrá barnabörnin á námskeið. Hægt er að hafa sambandi við skrifstofu GO ef ykkur vantar aðstoð við skráningu.

Öll börn sem skráð eru á námskeið hjá Oddi fá Ljúflingsaðild hjá Golfklúbbnum Oddi og geta haldið áfram að spila allt sumarið á okkar frábæra æfingavelli.

Verð fyrir 5 daga námskeið er 16.000 kr. 
Verð fyrir 4 daga námskeið er 13.000 kr. 

* Börn og barnabörn félagsmanna fá fastan afslátt 3000 kr (Kóðinn Oddur nýttur við skráningu)
* Veittur er systkinaafsláttur 3000 kr. (Kóðinn Oddur nýttur við skráningu)
* Börn sem koma á fleiri en eitt námskeið greiða lægsta gjald fyrir hvert námskeið umfram það fyrsta. 
* Ekki er veittur afsláttur ofan á afslátt og lágmarksgjald á 4 daga námskeið er 10.000 og 13.000 á 5 daga námskeið.

Námskeiðstími er 9 – 12 á öllum námskeiðum.
Kennt er á æfingasvæðinu, púttvelli og Ljúlfingi.
Ekki er skylda að börnin mæti með eigin búnað en það er samt velkomið. 

Farið er í grunnatriði golfíþróttarinnar. Kennslan er uppsett með æfingum og leikjum með það að markmiði að skapa ánægjulega upplifun fyrir börnin.Í lok námskeiðs er haldið lítið lokahóf þar sem börnin frá pylsur og svala ásamt pokamerki GO sem staðfestir leikheimild á Ljúflingi. Hægt er að senda fyrirspurn á oddur@oddur.is varðandi námskeiðin.

< Fleiri fréttir