• 1. Object
  • 2. Object

5.9° - S 4.7 m/s

585 0050

Book Tee Times

Guðjón með fyrsta ás sumarsins

Guðjón Steinarsson, félagi í Golfklúbbnum Oddi, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 15. braut Urriðavallar í dag. Guðjón var við leik í holukeppni GO þegar hann sló draumahöggið sem hans fyrsta á ferlinum.

„Ég hef tvisvar áður farið holu í höggi á Ljúflingi en aldrei á stærri golfvelli,“ sagði Guðjón kátur eftir gott dagsverk. „Ég sló höggið með U-kylfunni minni – 94 metra. Boltinn lenti metra fyrir framan holuna og rúllaði í. Þetta var alveg frábær tilfinning.“

Guðjón var tveimur holum niður í holukeppni gegn andstæðingi sínum fyrir draumahöggið á 15. braut en náði að snúa leiknum sér í vil með að vinna næstu þrjár brautir og tryggja sér svo sigurinn á 18. braut. Guðjón er fyrsti kylfingurinn til að fara holu í höggi í sumar á Urriðavelli svo vitað sé.

Við óskum Guðjóni hjartanlega til hamingju með draumahöggið – vonandi það fyrsta af mörgum.

Við bendum félögum á að senda okkur skilaboð fari kylfingar holu í höggi í sumar með tölvupósti á oddur@oddur.is

< Fleiri fréttir