• 1. Object
  • 2. Object

-2.2° - NA 2 m/s

585 0050

Book Tee Times

Haustgolfferð GO 2022 – TENERIFE

Golfklúbburinn Oddur og GB ferðir bjóða upp á sannkallaða golfveislu og lúxushótel í haustgolfferð GO 2022. Tveir möguleikar í boði 7 nætur eða 14 nætur á einstökum golfvelli og fimm stjörnu MELIÁ hóteli. 

Golfvöllurinn Buena Vista Golf er margverðlaunaður 18 holu golfvöllur sem hannaður var af Seve Ballesteros. Völlurinn er í stórkostlegu landslagi við sjóinn og ávallt með fallegri fjallasýn.  Völlurinn er par 72 og 6.160 metrar af öftustu teigum.  Allar holurnar eru einstakar og vel hannaðar.  Lokaholurnar á vellinum eru stórkostlegar og liggja þær margar meðfram sjónum (10, 13, 15, 16, 17).  18 holan er frábær par 5 hola.  Flatir vallarins eru þrælgóðar, stórar og með miklu landslagi.  Draumavöllur að okkar mati. Klúbbhúsið er stórt og þægilegt.  Veitingasvæðinu er skipt í innisvæði og útisvæði.  Maturinn er virkilega góður.

Melia Haciende del Conde er glæsilegt 5 stjörnu hótel á norðvesturhluta Tenerife við rætur hinna fögru Teno fjalla. Tilfinningin þegar þú kemur á hótelið er eins og að koma í þorp í gamalli James Bond mynd. Allt ákaflega fallegt, friðsælt og vandað. Hótelið er svítuhótel.  Svíturnar eru rúmgóðar (40m2) loftkældar, vel búnar öllum þægindum og m.a. fataherbergi. Í boði er hlaðborð  á “à la carte“ veitingastað hótelsins. Í sundlaugagarðinum eru 2 sundlaugar. Heilsurækt hótelsins er stór ”YHI–spa” 2500 m2 sem býður upp á ýmis konar heilsumeðferðir, gufuböð og æfingaaðstöðu.

Valmöguleiki 1: (7 nætur)
04.október (7 nights – 7 rounds) kr. 270.000 á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug með Icelandair (ein innrituð taska 23 kg og 10 kg í handfarangri innifalið í verði), flutningur á golfsetti, akstur til og frá flugvelli, gisting í junior svítu með morgunverðarhlaðborði, kvöldverðarhlaðborði, 7 x 18 holur.

Flug:
FI 580 04OCT KEFTFS 0840 1450  
FI 581 11OCT  TFSKEF 1550 2010 

Valmöguleiki 2: (14 nætur)
04.október  (14 nights – 14 rounds) kr. 415.000 á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug með Icelandair (ein innrituð taska 23 kg og 10 kg í handfarangri innifalið í verði), flutningur á golfsetti, akstur til og frá flugvelli, gisting í junior svítu með morgunverðarhlaðborði, kvöldverðarhlaðborði, 14 x 18 holur.

Flug:
FI 580 04OCT KEFTFS 0840 1450  
FI 581 18OCT TFSKEF 1550 2010  

Aukagjald fyrir einbýli:
7 nætur – Aukagjald fyrir einbýli ISK 63,000, Samtals kr. 333.000
14 nætur – Aukagjald fyrir einbýli ISK 126,000, Samtals kr. 541.000

< Fleiri fréttir