-1° - SV 1 m/s

585 0050

Book Tee Times

Uppselt …. HAUSTGOLFFERÐ GO – BELEK Í TYRKLANDI uppselt

Félagsferð GO til Gloria Golf Resort í Belek, seldist upp á mettíma í hádeginu í dag, einhverjir bókunarörðugleikar voru í ferlinu og því tókst ekki öllum að klára bókun sem er miður. Opið er fyrir skráningu á biðlista og það þarf að senda upplýsingar á golf@vita.is, nafn, netfang og símanúmer og vona að það rætist úr framboði eða hellist úr lestinni. 

Tyrklandi frá 20. – 29. okt 2026

BÓKUNARNÚMER 1795
BÓKUNARHLEKKUR: https://www.icelandair.com/is-is/flug/hopabokun/stadfesta-og-greida/

 
ÆTTI AÐ BIRTAST EINS OG Á MYNDINNI HÉR FYRIR NEÐAN,
BÓKUNARNÚMER SETT INN
VALINN FJÖLDI FARÞEGA
SMELLA Á DAGSETNINGU OG VELJA 20. OKT
SMELLA Á LEITA AÐ FERÐ OG KLÁRA MÁLIÐ
EINUNGIS 60 SÆTI Í BOÐI SVO FYRSTUR BÓKAR –  FYRSTUR FÆR
(Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með hinn hluta flugvélarinnar sem er
að fara með kylfinga á svæðið og seldist ferðin þeirra upp á methraða)

 
Gloria í Belek er frábær fimm stjörnu golfáfangastaður og er eitt flottasta og virtasta golfsvæði í Belek. Samtals þrír golfvellir, 2 x 18 holur Old og New course ásamt 9 holu Verde vellinum, samtals 45 holur eru á svæðinu.Allt innifalið í mat og drykk á hóteli, klúbbhúsi og buggy bar úti á golfvelli og 8 golfhringir með golfbíl.Verð og innifalið
579.000 kr á mann í tvíbýli
659.000 kr í einbýli
Beint flug til og frá Antalya með Icelandair
Innrituð taska 23 kg og golfsett 15 kg ásamt 10 kg handfarangri
Gisting á Gloria Golf resort í aðalbyggingu hótels
8 x 18 holu golfhringir á Old og New course til skiptis með golfbíl
Allur matur og drykkir á Gloria hóteli (morgun- og kvöldhlaðborð), klúbbhúsi Gloria (matseðill) og buggy bar úti á golfvelli

Akstur milli flugvallar og hótels

Íslensk fararstjórn Icelandair VITA Peter Salmon Golf 

*Auka 9 holur á Verde vellinum kosta ekkert aukalega. Ekki er hægt að bóka aukagolf fyrirfram, eingöngu eftir fyrstu 18 holur dagsins. Golfbíll kostar 30 evrur í aukagolfi.
*Aukagjald er á a la Carte veitingarstöðum um 20-30 evrur á mann

Flug

Flogið er í beinu leiguflugi með Icelandair til Antalya í Tyrklandi.

 

Ferðin er í heildina 9 nætur og eru flugtímar hér að neðan staðartímar. Flugtími er rúmlega 6 tímar og tímamismunur á Antalya eru +3 tímar.

 

Dagur Flugnúmer Brottför Tími Koma Tími
20. okt FI1504 Keflavík 07:20 Antalya 17:00
29. okt FI1505 Antalya 12:00 Keflavík 15:25

 

Golf

Á Gloria svæðinu eru 2 x 18 holur golfvellir – Old course og New course. Einnig er annar 9 holu völlur í fullri lengd – Verde Course. Semsagt 45 holu golfsvæði á sama stað sem gerir Gloria að eina svæðinu í Belek sem býður uppá svo margar golfholur. Gamli völlurinn á Gloria Golf Resort opnaði í september 1997 og er hannaður af franska golfvallahönnuðinum Michel Gayon. Þetta er einn elsti tyrkneski golfvöllurinn og er í miklu uppáhaldi hjá þúsundum kylfinga og margir koma aftur árlega. Völlunum þremur er haldið í háum gæðaflokki og eru með þeim bestu á svæðinu. Gloria Golf Resort státar af stórkostlegu klúbbhúsi, mjög góðri æfingaaðstöðu meðal annars 48 básar með Trackman tækni. Það er ókeypis skutla til Gloria golfklúbbsins í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð.
https://www.gloria.com.tr/en/experiences/golf/

 

Golfbílar og rástímar

Golfbílar eru innifaldir í pakkanum 8 x 18 holur.
Rástímar eru eftirfarandi 8 x 18 holur og skiptist hópurinn á að spila Old course og New course alla spiladaga. 23. okt eru spilaðar 9 holur á Verde vellinum og seinni 9 á New course. Við minnum á að dagsbirta í Belek á þessum árstíma er til kl 18:00:
 
21.10 > 08:03-09:06 New & 08:03-09:06 Old
22.10 > 08:03-09:06 New & 08:03-09:06 Old
23.10 > 11:21-13:27 Verde & 13:36 – 15:42 New
24.10 > 08:03-09:06 New & 08:03-09:06 Old
25.10 > 08:03-09:06 New & 08:03-09:06 Old
26.10 > 08:03-09:06 New & 08:03-09:06 Old
27.10 > 08:03-09:06 New & 08:03-09:06 Old
28.10 > 08:03-09:06 New & 08:03-09:06 Old
 
26. Okt – verður boðið verður uppá síðegis skoðunarferð um Antalya. Eftir golfið munum við keyra til Antalya meðfram Lara ströndinni og fyrst heimsækja Düden fossinn. Síðan ökum við inn í borgina, njótum útsýnisins yfir Konyaalti ströndina úr vestri og keyrum svo aftur í miðbæinn. Við munum heimsækja gömlu borgina, sögulega og menningarlega staði. Svo er farið aftur á hótelið. Skoðunarferðin tekur í heildina 4-5 tíma og kostar 50 evrur á menn með Þjórfé, greitt með seðlum úti.

Hótel

Á hótelinu eru herbergin öll nútímaleg, rúmgóð og vel búin. Í aðalbyggingunni eru 180 tveggja manna herbergi og 113 svefnherbergi í frönskum stíl. Það eru alls 293 standard herbergi með svölum og verönd. Herbergin eru öll vel búin, beinar símalínur, sjónvarp/gervihnattakerfi, LCD sjónvarp, loftkæling, herbergisþjónusta, WIFI internet. Öll herbergi okkar eru í aðalbyggingu sem var endurnýjað haustið 2024.

Gloria hótelið er mjög vel hannað og býður kylfingum frábæran stað til að vera á þegar þeir eru í golffríi með öllu inniföldu í Tyrklandi. Hótelið er frábærlega staðsett í
furuskógum við rætur Taurus-fjallanna alveg við ströndina.
https://www.gloria.com.tr/en/hotels/gloria-golf-resort/

Veitingahús og barir

Gloria Golf Resort býður upp á frábæra valkosti af veitingarstöðum og börum í
glæsilegum umhverfi. Valkostirnir henta örugglega öllum sem dvelja á Gloria þar sem valið er allt frá ítölskum mat, Ottoman matargerð, hlaðborðum og tyrkneskum
matseðlum. Það eru líka fullt af börum á svæðinu fyrir þá sem vilja slakandi drykk. Á svæðinu eru um 10 veitingarstaðir, kaffihús, barir og bakarí. ATH allur matur á
hlaðborðum er innifalinn ásamt drykkjum. Aukakostaður er á a la Carte stöðum og dýrari vínum s.s. gömlu vískí eða eldra rauðvíni.
https://www.gloria.com.tr/en/hotels/gloria-golf-resort/gastronomy/

Heilsulind og tómstundir

Það er framúrskarandi heilsulind á Gloria Golf Resort sem heitir La Source SPA &
Wellness sem býður upp á afslappandi umhverfi með sex nuddherbergjum og úrvali af íburðarmiklum meðferðum. Þetta er hið fullkomna umhverfi til að slaka á og dekra við sjálfan þig. https://www.gloria.com.tr/en/experiences/spa/
 
Auk heilsulindarinnar eru fjölmargar sundlaugar og önnur frábær afþreying fyrir virkari gesti. Meðal annars inniheldur Gloria líkamsræktarsvítu, fótboltaaðstöðu, vatnsíþróttir, tennis og fullt af annarri afþreyingu.

Staðsetning

Gloria Golf Resort er fullkomlega staðsett nálægt ströndinni og við golfvellina þrjá. Stutt er í miðbæ Belek eða um 10 mín í leigubíl. Gloria Golf Resort er aðeins um 45 mín akstur frá Antalya alþjóðaflugvellinum.

< Fleiri fréttir