• 1. Object
  • 2. Object

2.4° - ANA 7.1 m/s

585 0050

Book Tee Times

Haustgolfferð GO La Manga Golf 14. – 21. október 2021

La Manga golf resort – 14. – 21. október 2021

Í samstarfi við GB ferðir ætlum við svo sannarlega að treysta á að haustið 2021 sé rétti tíminn fyrir okkar árlegu golfferð sem fresta þurfti á síðasta ári og því auglýsum við hér á nýjan leik stórglæsilega golfferð á nýjan áfangastað GB Ferða LA MANGA sem er glæsilegt 5* golfsvæði 90 mín sunnan við Alicante. La Manga hefur oft verið valið besta golfresort Evrópu.

Gist verður á Hótel Principe Felipe, sem er fallegt 5* hótel staðsett rétt við norður og suðurvöllinn. Þetta er tignarleg bygging og það er augljóst að þeir sem byggðu hótelið upphaflega hafa verið stórhuga einstaklingar. Herbergin eru falleg og vel innréttuð. Morgunverðarhlaðborðið er innifalið og þar er um að ræða ekta spænskt og vel úti látið hlaðborð. Hægt er að bæta við hálfu fæði fyrir 35 evrur á dag og þá er hægt að velja milli þriggja veitingastaða á svæðinu.

Á La Manga eru þrír 18-holu golfvellir, suður, norður og vestur völlurinn, sem allir eru ólíkir. Vestur völlurinn er talinn einn af 100 bestu golfvöllum Evrópu og allir La Manga golfvellirnir eru meðal 40 bestu á Spáni.

Á svæðinu er glæsilegur 18 holu pitch&pútt æfingavöllur sem Severiano Ballesteros hannaði. Æfingaaðstaða og æfingasvæði eru til mikillar fyrirmyndar og hefur La Manga verið sigurvegari í vali á besta golfstað Spánar 5 ár í röð af lesendum Today´s Golfer.

La Manga (14.-21.október). Verð kr. 249.000 á mann í tvíbýli og kr. 290.000 á mann í einbýli.

Innifalið: Flug með Icelandair, 1 taska sem vegur allt að 23 kg, 1 taska (10 kg) + einn hlutur til persónulegra nota, flutningur á golfsetti, akstur til og frá flugvelli. 7 nætur í standard herbergi á Prince Felipe 5* með glæsilegu morgunverðarhlaðborði á hótelveitingastaðnum Amapola Restaurant, 6 x 18 holur á einum af þrem golfvöllum svæðisins ásamt aðgengi að sundlaug og líkamsræktarstöð hótelsins.

Rástímar:
15/10/2021 La Manga Club West Tee 1 11:27
16/10/2021 La Manga Club Sur Tee 1 08:36
18/10/2021 La Manga Club Norte Tee 1 08:18
19/10/2021 La Manga Club West Tee 1 08:36
20/10/2021 La Manga Club Norte Tee 10 08:27
21/10/2021 La Manga Club Norte Tee 1 08:00

Einnig innifalið í verði:
Welcome drykkur á komudegi 14.október (Glass of Cava)
Sameiginlegur Gala kvöldverður 19. Október ( 3 rétta kvöldverður með 1 flösku af víni á mann)

Flug:
ÚT: 14. okt KEF ALC FI 1582 kl 08:50 – 15:10 Heim: 21.okt ALC KEF FI 1583 kl. 16:10 – 18:40

SKILMÁLAR: Skráning í ferðina er í gegnum Golfklúbbinn Odd og stendur forskráning yfir til 22. apríl 2021 einungis 48 sæti í boði. Að lokinni forskráningu verður staðfestingargjald innheimt af GB ferðum sem sjá þá um ferlið frá þeim degi. Staðfestingargjald er kr. 50.000,- Hægt er að fá staðfestingargjaldið endurgreitt innan 7 daga frá bókun, annars óendurkræft að öllu leyti. Eftirstöðvar skuldfærast 12 vikum fyrir brottför. Verð miðast við lágmarksskráningu 38 manns. Annars áskiljum við okkur þann rétt að fella ferðina niður. Ef landamæri Spánar/Alicante loka einhverra hluta vegna eða vegna Covid – 19 þá fá allir endurgreiðslu. Ef einhver hættir við vegna persónulegra aðstæðna þá gilda almennar reglur og skilmálar.

Annað:
Hálft fæði € 35,00
Auka golf € 64,00
Golfbíll € 48,00 (þarf að panta)
Rafmagnskerra € 20,00 (þarf að panta)
Golfkerra € 8,00
Þeir sem vilja spila meira en 18 holur á dag geta bókað það háð bókunarstöðu samdægurs

Nánar um svæðið:
Robert D. Putnam hannaði Norður (par-71) og Suður-golfvöllinn (par-73), en að hönnun þess síðarnefnda (par-73) kom einnig Arnold Palmer. Dave Thomas hannaði hins vegar vesturvöllinn (par-72). Norður og Suðurvellirnir eru við hótelið og þar fara mjög skemmtilegir vellir. Þeir eru opnir með mörgum stórglæsilegum holum. Vesturvöllurinn þykir perlan á svæðinu , Hannaður af Dave Thomas. á Vesturvellinum skiptir leikskipulag miklu máli. Þar er mikilvægt að koma bolta í leik og spila af skynsemi. Völlurinn er krefjandi en gríðarlega fallegur.

Vesturvöllurinn er talinn einn af 100 bestu golfvöllum Evrópu og allir La Manga golfvellirnir eru meðal 40 bestu á Spáni.

Æfingaaðstaða og æfingasvæði eru til mikillar fyrirmyndar og hefur La Manga verið sigurvegari í vali á besta golfstað Spánar 5 ár í röð af lesendum Today´s Golfer

Allar frekari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu GO í síma 585-0050 eða á pósti á netfangið oddur@oddur.is og einnig í síma GB ferða 534-5000 eða á netfangið info@gbferdir.is

< Fleiri fréttir