30/09/2026

Þótt hefðbundnu golftímabili sé senn að ljúka geta félagsmenn áfram leikið golf á Urriðavelli og Ljúflingi á meðan veður og aðstæður leyfa eitthvað vel inn í október. Eins og við flest þekkjum getur haustveður breyst hratt og þegar kólnar geta komið upp aðstæður þar sem nauðsynlegt er að loka sérstaklega á morgnana með skömmum fyrirvara. Félagsmenn eru því hvattir til að fylgjast vel með rástímabókun í GolfBox eða á facebook síðu GO þar sem við uppfærum stöðu mála. Uppfærsla á einnig við um golfbílaumferð en almennt eru þeir bannaðir þá daga sem rignir á haustin en við gerum okkar besta að heimila notkun ef aðstæður eru viðunandi.
Haustverkin hér á Urriðavelli fóru á fullt í vikunni og salernum á Urriðavelli hefur verið lokað, aðgengi er að salerni í golfskála á opnunartíma sem breytist nokkuð í takt við birtu á kvöldin eða veður.
Vinna stendur yfir með götun á flötum sem verða gataðar með 8 mm pinnum, valtaðar og slegnar. Flagg verður fært á vetrar eða tímabundna flöt meðan á vinnu stendur.
Sláttur hæð verður hækkuð sem hægir nokkuð á rúlli.
Á döfinni er svo að hefjast handa við lagningu vatnskerfis í nokkra teiga og verða teigar færðir fram á meðan á vinnu stendur.
Biðjum kylfinga því um að sýna varkárni og almenna tillitsemi við okkar starfsfólk svo allt gangi vel.
Með lækkandi hitastigi hægir á vexti gróðurs og því verður góð umgengni kylfinga um golfvelli almennt enn mikilvægari. Allir kylfingar eru hvattir til að leggja sitt af mörkum til að halda Urriðavelli í sem besta ásigkomulagi og hjálpa þannig til að hafa opið eins lengi og aðstæður leyfa.
Sérstaklega er mikilvægt að ganga vel frá torfusneplum á brautum og nota flatargaffla til að laga boltaför á flötum.
Biðjum kylfinga því um að sýna varkárni og almenna tillitsemi við okkar starfsfólk svo allt gangi vel.