• 1. Object
  • 2. Object

10.8° - NV 1.1 m/s

585 0050

Book Tee Times

Holukeppni GO skráning hafin

Holukeppni GO er ætluð karl- og kvenkylfingum klúbbsins, allir geta verið með, óháð grunnforgjöf (0 – 54,0). Holukeppni er hið upphaflega keppnisform í golfi og þykir einstaklega skemmtilegt leikform. Keppt er með forgjöf sem jafnar leikinn verulega milli keppenda. Hámarks leikforgjöf karla er 24 og kvenna 28. Mótið er tvískipt og keppt í karlaflokki og kvennaflokki, og sigurvegarar í þeim flokkum mætast svo í úrslitaleik um titilinn holumeistari GO.

Skráning er opin á golfbox.golf lýkur skráningu 1. júní klukkan 12:00. Að skráningu lokinni er dregið um hvaða keppendur mætast í fyrstu umferð.

Keppendur koma sér saman svo um leikdag og leiktíma. Gefnar eru c.a. tvær vikur til að ljúka leik í hverri umferð og birtast lokadagar hverrar umferðar í upplýsingum um mótið þegar fyrstu ráslistar eru klárir. Leikið er með útsláttarfyrirkomulagi, þannig að sigurvegari í hverjum leik heldur áfram keppni, en sá sem tapar hefur lokið keppni í mótinu.

Mótsgjald er 3500 kr.

Holukeppnin er leikin með forgjöf sem fer þannig fram að mismunur á leikforgjöf keppenda raðast á 18 holur samkvæmt erfiðleikastuðli forgjafar eins og fram kemur á skorkorti. Keppendur taka leikforgjöf samkvæmt forgjafartöflu.

Reglugerð í holukeppni GO

< Fleiri fréttir