• 1. Object
  • 2. Object

4.1° - SSV 6.8 m/s

585 0050

Book Tee Times

HREINSUNARDAGUR 1. MAÍ (PLOKKDAGUR)

Við ætlum að blása til hreinsunardags / plokkdags næskomandi fimmtudag 1. maí.

Við gerum ráð fyrir að hefja vinnu klukkan 10:30 og ætlunin er að taka til hendinni við að hreinsa vallarsvæðið, vinna í beðum og umhverfi í kringum skálann, tína upp bolta sem ekki hafa hitt æfingasvæðið og vaða í önnur tilfallandi verkefni.

Þeir sem eiga plokktangir og áhöld sem gætu komið að góðum notum eru beðnir um að taka slíkt með sér þar sem Golfklúbburinn á takmarkað magn af slíkum áhöldum. 

Við grillum pylsur að lokinni vinnu uppúr 12:00 og allir sem taka þátt í deginum fá tækifæri á því að bóka sig í golf á opnunardegi golfvallarins ef öll plön ganga eftir hvað það varðar 10. maí. 

Æfingasvæðið verður lokað frá morgni og alveg til c.a. 13:00, eða meðan á vinnu stendur. 

 

< Fleiri fréttir