• 1. Object
  • 2. Object

2.4° - A 3.6 m/s

585 0050

Book Tee Times

Hreinsunardagur á fimmtudag

Hreinsunardagur GO fer fram fimmtudaginn 5. maí á Uppstigningardag. Mæting er kl. 09:00 í golfskálanum á Urriðavelli. Eftir að hafa tekið til hendinni og fegrað umhverfið á Urriðavelli verður boðið í létt grill. Eftir hádegi fá þátttakendur að leika níu holur á Urriðavelli inn á sumarflatir og geta því aðeins gripið forskot á golfsæluna.

Þátttakendur í Hreinsunardegi GO eru hvattir til að koma mæta útbúnir fyrir garðyrkjustörf og taka með sér hanska. Þeir sem hafa tök á því að taka með sér verkfæri gróðurhreinsunarverka (s.s. rökur fyrir arfa o.s.frv.) eru beðnir um að gera það.

< Fleiri fréttir