• 1. Object
  • 2. Object

2.8° - S 3.4 m/s

585 0050

Book Tee Times

Hreinsunardagur á Urriðavelli

VIÐ ÆTLUM AÐ PLOKKA OG HREINSA Á URRIÐAVELLI OG OKKAR NÆRUMHVERFI LAUGARDAGINN 9. MAÍ OG VIÐ VILJUM ENDILEG FÁ YKKAR HJÁLP VIÐ AÐ FEGRA SVÆÐIÐ

Við hefjum okkar vinnu klukkan 10:00 og mæting er við golfskálann þar sem hægt er að fá poka og við úthlutum svæðum til þátttakenda. Við pössum okkur á að virða 2 metra regluna og við gerum ráð fyrir að vinna standi á milli 10:00 og 12:00. Að lokinni vinnu munum við bjóða upp á grillaðar pylsur og drykki fyrir þá sem mæta.
 

 Rúsínan í pylsuendanum 

er svo að þeir sem taka þátt í hreinsunardeginum geta forbókað sig í opnunarmót GO sem haldið verður fyrsta dag opnunar eins og kemur fram í ræðu formanns.

SJÁUMST Á LAUGARDAGINN 

< Fleiri fréttir