• 1. Object
  • 2. Object

2.6° - ASA 3.3 m/s

585 0050

Book Tee Times

Ingibjörg sigraði í Hreinsunarmótinu

Hreinsunardagur GO fór fram í gær á Urriðavelli og var þátttaka að venju góð. Tekið var til hendinni og meðal annars voru beð við bílastæði hreinsuð til. Öllum þátttakendum í hreinsunardeginum var í kjölfarið boðið upp á grillaðar pylsur og gos.

Eftir hádegi fór Hreinsunarmót GO fram og var það Ingibjörg Bragadóttir sem bar sigur úr býtum. Hún hlaut 20 punkta rétt eins og Björg Þórarinsdóttir en Ingibjörg var með fleiri punkta á síðustu sex punktunum. Sonja María Hreiðarsdóttir varð svo í þriðja sæti með 19 punkta.

Nándarverðlaun:
4. braut – Ágústa Arna Grétarsdóttir
8. braut – Ingibjörg Bragadóttir

Lengsta teighögg á 9. braut
Konur: Elísabet Pétursdóttir
Karlar: Hafsteinn E. Hafsteinsson

< Fleiri fréttir