9.7° - ANA 3 m/s

585 0050

Book Tee Times

Keppnissveitir GO 2026 – keppendur og hlekkur á stöðuna

Valið hefur verið í keppnissveitir GO fyrir komandi Íslandsmót golfklúbba og LEK mót golfklúbba sem fram fara í ágúst. Við óskum okkar keppendum til hamingju með valið og góðs gengis á komandi mótsdögum. 

Fyrstu keppnissveitir GO hefja leik núna mánudaginn 11. ágúst, þar sem 65+ karlalið GO, 65+ Kvennalið GO og 75+ karlalið GO mæta til á LEK mót golfklúbba. Karlalið 65+ fer í Öndverðarnes, kvennalið 65+ fer til Grindavíkur og 75+ karlar skella sér í Þorlákshöfn.

Staðan í 65+ karlar

Staðan í 65+ konur

Staðan í 75+ karlar

Meistaraflokkur kvenna skellir sér á Hornafjörð dagana 13. – 15. ágúst og meistaraflokkur karla tekur ferjuna yfir til Eyja þar sem þeirra mót verður leikið dagana 16. – 18. ágúst í eyjunni fögru.

Síðustu liðin okkar í Íslandsmót þetta árið eru svo sveitir 50 + karla og kvenna. Suðurnesin er að taka á móti okkar fólki þar, konurnar leika hjá GS í Leirunni og karlarnir mæta í Sandgerði, bæði liðin leika dagana 20. – 22. ágúst.

Keppnislið GO 75 + Karlar

Guðmundur Ingi Jónsson, liðsstjóri
Hjálmar Jónsson
Þór Ottesen Pétursson
Þorgeir Valdimarsson
Dagbjartur Björnsson
Rúnar Gunnarsson 
Varamaður Hafliði Þórsson

Keppnislið GO 65 + Konur  

Ingibjörg Sigurrós Helgadóttir, liðsstjóri
Unnur Birna Þórhallsdóttir
Gunnhildur Hauksdóttir
Þuríður Halldórsdóttir
Snjólaug Elín Bjarnadóttir
Hafdís Ævarsdóttir
Björg Þórarinsdóttir, varamaður

Keppnislið GO 65 + Karlar

Þór Geirsson, liðsstjóri
Ingi Þór Hermannsson
Páll Kolka Ísberg
Örn Bjarnason
Gunnlaugur Magnússon
Magnús Ólafsson
Þórður Möller
Guðmundur Ragnarsson
Ragnar Gíslason

Keppnislið GO 50 + Konur

Berglind Rut Hilmarsdóttir
Etna Sigurðardóttir
Ágústa Arna Grétarsdóttir
Elín Hrönn Ólafsdóttir
Auður Skúladóttir
Kristjana S. Þorsteinsdóttir
Dídí Ásgeirsdóttir
Unnur Helga Kristjánsdóttir
Rósa Morthens.
Liðsstjóri: Sólveig Guðmundsdóttir

Keppnislið GO 50 + Karlar
Óskar Bjarni Ingason
Svavar Geir Svavarsson
Haraldur V. Haraldsson
Sigurhans Vignir
Vignir Freyr Andersen
Jóhann Pétur Guðjónsson
Eggert Eggertsson
Bjarni Magnússon

 

Meistaraflokkur karla, hlekkur á stöðu mála

Óskar Bjarni Ingason, liðsstjóri
Skúli Ágúst Arnarson
Bergur Dan Gunnarsson
Bjarki Þór Davíðsson
Axel Óli Sigurjónsson
Sigurður Árni Þórðarson
Gunnar Guðjónsson
Ólafur Ágúst Ingason

Meistaraflokkur kvenna, hlekkur á stöðu mála

Auður Björt Skúladóttir
Hekla Ingunn Daðadóttir
Heiða Guðnadóttir
Eydís Inga Einarsdóttir
Giovanna Steinvör Cuda
Íris L. Káradóttir

 

< Fleiri fréttir