• 1. Object
  • 2. Object

10.2° - SA 3.9 m/s

585 0050

Book Tee Times

LÉTTAR OG LITRÍKAR Á LJÚFLINGI 8. ÁGÚST

LÉTTAR OG LITRÍKAR Á LJÚFLINGI 8. ÁGÚST.
Það styttist í skemmtimót sumarsins á Ljúflingi þar sem þemað verður litríkar og skrautlegar, enda ekki vanþörf á að lífga aðeins upp á “sumar” litina núna. Allur klæðnaður leyfður – látið hugmyndaflugið ráða för.

Mæting í skála kl. 16:30. Verð 2.500 kr.
Fyrirkomulag mótsins verður þannig að spilaðar verða 9 holur á Ljúflingi. Höggleikur án forgjafar. Aðeins leyfðar tvær kylfur að eigin vali.

Veitt verða verðlaun fyrir hin ýmsu afrek m.a. fyrir 3 bestu skorin, auk lengsta teighöggs á 1 braut, þar sem upphafshögg skal slegið með PÚTTER (það verða pútterar á staðnum til afnota ef konur hafa ekki valið þá til að spila með í upphafi). Nándarverðlaun á 4 braut og 6 braut (þarf ekki að vera inná flöt).

Vippkeppnin mun fara fram milli 1. og 9. brautar og dregin verður út verðlaunahafi úr þeirri keppni.
Veitingabíllinn verður að sjálfsögðu á ferðinni og mun bjóða uppá „Orkudrykki“ til að halda konum hraustum á meðan spilað er. Eftir mót munu konur koma saman í Golfskálanum og fá sér hressingu.

Verð kr. 2.500,-
Innifalið er: 9 holur á ljúflingi, teiggjöf, hressing á teig og meðan á móti stendur og matarmikil súpa, ásamt glasi af víni í skála eftir mót.

Mælum með að taka vinkonurnar með (sérstaklega ef þær hafa ekki spilað golf), því hér gefst tækifæri að kynnast þessari skemmtilegu íþrótt frá nýju sjónarhorni. Konur með Ljúflingsaðils í Oddi eru sérstaklega velkomnar á sinn heimavöll.

Skráning er með tölvupósti á engilberts@simnet.is fram til 7. ágúst. og skráningargjald skal greitt inn á reikning okkar 
526-14-405012, kt. 3004492209.

Það verður stanslaust fjör
Kvennanefnd Golfklúbbsins Odds

< Fleiri fréttir