• 1. Object
  • 2. Object

8.9° - NV 5.1 m/s

585 0050

Book Tee Times

Lokamót Oddskvenna þann 12. september

Ágætu Oddskonur,
Þá er komið að lokamóti okkar sumarið 2015.

Tími: Mæting kl. 13.00 – ræst út af öllum teigum kl. 14.00
Leikur: Tveggja manna Texas scramble.

Skráning á Golf.is
Þær tvær sem vilja spila saman þurfa að skrá sig saman í holl.

Eftir mót bíður okkar fordrykkur og glæsilegur kvöldverður.
Lamb og kalkúnn „A la Niculas“ kaffi og konfekt.

Teiggjöf, skemmtilegheit, vegleg verðlaun og dregið úr skorkortum.
Verðlaun fyrir 1., 2. og 3ja sætið
Nándarverðlaun á par 3 brautum 4-8-13-15
Lengsta drive á 9. braut.

Fugladrottning Odds 2015 dregin út.
(Stefnir í að það verði um 400 fuglar í pottinum í ár).

Verð kr. 4.900,-
Staðfestið þátttöku, fyrir 11, september með greiðslu inn á reikning: 513-26-6707, kennitala: 281058-6739 (Guðmundína Ragnarsdóttir) og sendið tölvupóst á engilberts@simnet.is

Texas Scramble – skýring á leikaðferð:
Þegar Texas Scramble er leikið leika tveir kylfingar saman í liði.
Fer leikurinn þannig fram að báðir slá högg af teig, síðan velja þeir þann bolta sem þeim þykir vera í betri stöðu og slá báðir boltann þaðan. Sá sem á þann bolta sem kylfingunum þykir lakari færir því sinn bolta að bolta félaga síns. Sá sem átti betri boltann slær yfirleitt á undan og hinn á eftir. Eftir þau högg endurtekur ferlið sig allt þangað til boltinn er kominn í holuna. Texas Scramble er spilað með forgjöf og er reglan sú að sameiginleg vallarforgjöf kylfinganna tveggja er tekin saman og deilt í hana með tölunni fimm.

Hlökkum til að sjá ykkur allar.
Kvennanefnd
Golfklúbbsins Odds

< Fleiri fréttir