• 1. Object
  • 2. Object

3.9° - VNV 6.1 m/s

585 0050

Book Tee Times

Lokamót og lokahóf í liðakeppni GO – 2. september

Lokamót sumarsins á Powerade-mótaröðinni og lokahóf og verðlaunaafhending fyrir mót sumarsins fer fram laugardaginn 2. september. Ræst verður út af öllum teigum klukkan 12:30 sem er nýlunda í þessari keppni og því ætti dagurinn að geta verið spennandi og skemmtilegur. Staða efstu liða er jöfn og spennandi og mörg lið sem geta komið sér í stöðu á topp 10 listanum og þar með nælt sér í verðlaun. 

Powerade 2017 – staða liða

 

 

Mót nr. 5 Keppnisfyrirkomulag: Punktakeppni. LOKAMÓT með lokahófi um kvöldið.
Samanlagt punktaskor tveggja punktahæstu leikmanna liðs telst vera skor liðsins í þessari keppni. Veitt eru stig til liðsins eftir stigatöflu.

Rástímaskráning hefst kl. 12.00 þann 20.ágúst.

ATH. – Að aðeins mega tveir kylfingar úr sama liði skrái sig saman í ráshóp. 
Mótanefnd mun raða í ráshópa ef með þarf. 
Dregið verður um á hvaða teigum hver ráshópur byrjar með þeirri undantekningu að kylfingum á bílum verður raðað á teiga.

 

< Fleiri fréttir