30/08/2026

FYRIRSÆTURNAR stálu heldur betur sviðinu í lokamóti Thule liðakeppninni í ár, 2700 stig í lokamótunum tveimur sem leikin voru sem eitt mót þar sem keppt var í hefðbundinni punktakeppni þar sem bestu tveir leikmenn töldu fyrir liðið og svo var tekið besta skor leikmanns liðs á holu og úr því fundið besta skor liðs og sama stigatafla gaf stig eins og í hefðbundnu móti og það sveiflaði Fyrirsætunum uppfyrir Sveiflugengið. Tíu sæta stökk úr 11. sæti í það fyrsta, aldeilis glæsileg frammistaða og við óskum þeim innilega til hamingju með sigurinn í ár.
Í móti 5 sem var fyrra mótið í lokasyrpunni sigraði lið Míron með 80 punkta þar sem Kristbjörg Guðmundsdóttir átti yfirburðardag á aðra keppendur og skilaði 45 punktum í hús og fékk stuðning í samanlagt skor frá Helgu Björnsdóttur sem skilaði 35 punktum. Virkilega vel spilað hjá Kristbjörgu og í öðru sæti í mótinu varð Björg Þórarinsdóttir sem lék einnig frábært golf á 42 punktum og Ingibjörg Sigurrós Helgadóttir bætti 37 punktum í sarpinn sem tryggði þeim 2. sætið í þessu móti samanlagt á 79 punktum og lagði grunn að þessari sveiflu upp í fyrsta sætið.
Í móti 6 var hörkukeppni og Fyrirsæturnar fengu harða keppni frá Prinsunum sem voru eiginlega hástökkvarar vikunnar í heildarkeppninni fóru upp um 15. sæti úr 24 í 9. sæti. Bæði lið fengu 56 punkta í besta skors mótinu, en fyrirsæturnar átti frábærar seinni 9 holur samanlagt og tóku því efsta sætið þeirra og 1500 stig einnig sem tryggðu þeim á endanum stigatitilinn í ár.
Heildarniðurstaða er hér fyrir neðan en verðum að færa þeim frábæru fyrirtækjum sem veita okkur verðlaun í ýmsum formi, bæði gegnum styrktarsamninga og bein tengsl og það er okkur gífurlega mikilvægt. Ef við tökum einhverja heildartölu saman liggur verðmæti vinninga í 2,600,000. Hér eru þeir helstu:
LOKASTAÐAN