01/06/2026

Metfjöldi kylfinga var skráður í fyrsta mót sumarsins í GOLF14 aldursflokkamóti GSÍ. Alls 166 sprækir keppendur á aldrinum 14 ára og yngri.
Mikil stemning var á svæðinu, fjölskyldur og vinir komu saman og áttu góðan dag á Nesvellinum.
Frábær skráning var hjá okkur í Golfklúbbnum Oddi, en alls voru 20 keppendur á okkar vegum skráðir til leiks og áttu okkar krakkar magnað mót.
Keppt er í þremur aldursflokkum í stúlkna og drengjaflokki. Alls komust 5 krakkar á verðlaunapall og við áttum sigurvegara í tveimur aldursflokkum, til hamingju Ásta Sigríður og Jóhann Karl.
Í flokki 13 – 14 ára stúlkna voru leiknar 27 holur og hafnaði Emilía Sif Ingvarsdóttir í 2. sæti. Lék alls á 120 höggum ( 40 /41 /39)
Í flokki 11 – 12 ára stúlkna voru leiknar 18 holur og þar sigraði Ásta Sigríður Egilsdóttir flokkinn á frábæru skori 87 höggum (44/43) og þriðja sæti varð svo Hekla Ólafsdóttir en hún lék á 92 höggum (45/47), sami höggafjöldi og stúlkan í 2. sæti en þar sem seinni hringurinn telur þá til að skilja að hafnaði Hekla í 3. sæti.
Í flokki 10 ára og yngi stúlkkna voru leiknar 18 holur og þar varð Hildur María Karlsdóttir jöfn í 2. -3. sæti á 103 höggum (52/51).
Í flokki 10 ára og yngri drengja áttum við svo sigurvegara, þar voru einnig leiknar 18 holur og Jóhann Karl Ingvarsson sigraði þann flokk á 82 höggum (38/44).
Við óskum öllum okkar krökkum innilega til hamingju með flott mót og verðlaunahöfum til hamingju með sinn frábæra árangur. GSí, Golf14 og Nesklúbburinn færum við þakkir fyrir alvöru stórmót.