16/07/2026

Þriðjudaginn 14. júlí fóru fram tvö Golf14 mót, Bakkakotsmótið hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar og Sveinskotsmótið hjá Golfklúbbnum Keili, með þátttöku á annað hundrað ungra kylfinga. Krakkarnir okkar úr Oddi náðu glæsilegum árangri í öllum flokkum.

Verðlaunahafar í flokki 13-14 ára stúlkna. Emilía Sif Ingvarsdóttir úr Oddi tryggði sér 2. sætið. (t.v).
Í flokki 13-14 ára stúlkna fór Emilía Sif Ingvarsdóttir í spennandi bráðabana um 2. sætið eftir að hafa endað jöfn í höggleiknum – og hafði betur. Í sama flokki stóðu sig einnig vel Margrét Birta Snorradóttir (9. sæti), Thelma Lind Oddsdóttir (10. sæti) og Elísabet Ragnars Andradóttir (13. sæti).
Í yngsta flokki drengja á Sveinskotsmótinu spilaði Juan Alejandro Rivas Sigurðsson stórkostlegt golf og tryggði sér 2. sætið, aðeins þremur höggum á eftir sigurvegaranum.

Juan Alejandro Rivas Sigurðsson (t.v.) með verðlaunapeninginn fyrir 2. sætið í yngsta flokki drengja.
Í flokki 11-12 ára drengja endaði Eyþór Kári Stefánsson í flottu 6. sæti og Þröstur Orri Pétursson nældi sér í nándarverðlaunin, aðeins 324 sentimetrum frá holu. Franklin Hugo Unnsteinsson, Birkir Helgi Guðmundsson og Oddur Unnar Sigurjónsson kepptu einnig í fjölmennum flokki.

Þröstur Orri Pétursson (t.v.) ásamt keppinautum sínum í flokki 11-12 ára drengja.
Í flokki 11-12 ára stúlkna náði Thelma Clausen Halldórsdóttir 5. sæti og í flokki 13-14 ára drengja endaði Aron Snær Pálsson í 9. sæti.
Golfklúbburinn Oddur óskar öllum krökkunum til hamingju og þakkar Golfklúbbi Mosfellsbæjar og Golfklúbbnum Keili fyrir vel heppnuð mót.