19/08/2026

Meistaraflokkur karla í Golfklúbbnum Oddi hefur lokið leik á Íslandsmóti golfklúbba en mótið fór fram í Vestamannaeyjum í ár. Hörkulið voru mætt til leiks og flestir leikir jafnir og spennandi og eftir riðlakeppni var ljóst að okkar menn ættu fyrir höndum keppni um að halda sæti í deildinni eftir tvö töp og eitt jafntefli í riðlahluta mótsins.
Í fyrsta leik í úrslitariðli 5 – 8 sætis, mættu okkar kappar liði ESJU og þar var hörkuleikur sem naumlega tapaðist 3/2 og ljóst að allt var undir í lokaleik mótsins sem var við lið Skagafjarðar. Leikurinn var jafn og spennandi og réðust úrslit leiksins á síðasta pútti á 18 holu þar sem Skúli Ágúst tryggði jafntefli í viðureigninni sem dugði okkar liði í 7. sæti og því sæti í deildinni tryggt fyrir næsta ár.
Hér má sjá alla leiki mótsins og stöðu mála, við óskum liði heimamanna í GV innilega til hamingju með sigur í mótinu og sæti í efstu deild að ári.
LIÐ GO frá vinstri
Axel Óli Sigurjónsson, Sigurður Árni Þórðarson, Skúli Ágúst Arnarson, Gunnar Guðjónsson, Ólafur Ágúst Ingason, Tómas Sigurðsson, liðstjóri, Bjarki Þór Davíðsson, Óskar Bjarni Ingason og Bergur Dan Gunnarsson