• 1. Object
  • 2. Object

4.8° - ANA 7.4 m/s

585 0050

Book Tee Times

Meistaraflokkur karla náði 3. sæti á Íslandsmóti golfklúbba í 2. deild.

Eftir flott mót hjá okkar mönnum þar sem þeir voru hársbreidd frá því að keppa um sæti í efstu deild þá varð það okkar hlutskipti að keppa um 3. sætið við nágranna okkar úr Setbergi. Í fyrstu umferð mótsins töpuðu okkar menn gegn þeim og því mættu okkar drengir ákveðnir til leiks og ekkert annað en sigur kom til greina.

Leikurinn var hörkuspennandi en endaði með góðum sigri okkar manna 3/2 og þriðja sætið okkar. Við óskum okkar mönnum innilega til hamingju með árangurinn.

Efri röð, Birkir Þór Baldursson, Sigurður Björn Waage Björnsson, Bjarki Þór Davíðsson og Axel Óli Sigurjónsson. Í neðri röð Skúli Ágúst Arnarsson, Sigurður Árni Þórðarson og Rögnvaldur Magnússon. Fyrir framan þá er Don Óskar Bjarni Ingason

< Fleiri fréttir