25/09/2026


Páll Jóhannsson, fyrrverandi formaður Golfklúbbsins Odds, lést 1. september síðastliðinn.
Páll var einn af frumkvöðlum Golfklúbbsins Odds og átti stóran þátt í mótun félagsins á fyrstu árum þess. Hann sat í fyrstu stjórn klúbbsins, þegar Urriðavöllur var enn illa gróinn níu holu völlur í Urriðavatnsdölum. Páll kom til Odds sem reyndur og góður kylfingur og var þátttaka hans mikill styrkur fyrir hið unga félag.
Páll varð síðar annar formaður í sögu Golfklúbbsins Odds og gegndi formennsku á árunum 1994–1998. Þar vann hann mikið og farsælt starf. Að stjórnarsetu lokinni hélt hann áfram öflugu sjálfboðaliðastarfi fyrir klúbbinn og leiddi mótanefnd Odds um langt árabil.
Framlag Páls spannar stóran hluta af mótunar- og uppbyggingarskeiði Golfklúbbsins Odds og Urriðavallar. Hann var maður framkvæmda og lagði mikið af mörkum til þeirrar vegferðar sem breytti Urriðavelli úr einföldum níu holu velli í eitt glæsilegasta golfsvæði landsins. Golfklúbburinn Oddur stendur í mikilli þakkarskuld við Pál fyrir frumkvöðlastarf hans, forystu og áratuga framlag til félagsins.
Við minnumst Páls og framlags hans til golfsins af miklu þakklæti. Það er á grunni þess starfs sem brautryðjendur á borð við Pál lögðu af mörkum sem íslenskt golf hefur vaxið og dafnað.
Golfklúbburinn Oddur vottar fjölskyldu Páls og vinum innilega samúð.
Fyrir hönd GO
Kári Sölmundarson
Formaður