• 1. Object
  • 2. Object

11.2° - SA 8.4 m/s

585 0050

Book Tee Times

Nike Midnight Open á Urriðavelli

Eitt glæsilegasta miðnæturmót ársins fer fram á Urriðavelli 24. júní 2016. Þá fer fram Nike Midnight Open mótið. Ræst verður út á öllum teigum samtímis kl. 20:00. Mæting er í síðasta lagi kl. 19:30. Keppnisfyrirkomulag er punktakeppni með forgjöf.

Verðlaun í punktakeppni:
1. sæti – Nike Vapor Fly driver
2. sæti – Nike Method Converge Counterflex pútter
3. sæti – Nike Air sport III Carry bag

Besta skor í höggleik án forgjafar: Nike Vapor Fly driver

Nándarverðlaun verða á öllum par-3 brautum. Sá sem er næstur holu fær glæsilegan Nike Polo bol að eigin vali úr golfverslun Golfklúbbsins Odds. Allir keppendur fá Nike PD Soft golfbolta í teiggjöf.

Dregið verður úr skorkortum og fá 20 keppendur Nike Starter Pack.

Skráning á golf.is

< Fleiri fréttir