Gleðilegt sumar kæru félagar,
Nú sjá allir golfsumarið í hyllingum og margir gera sér leið að Urriðavelli til að taka hann út, spjalla við starfsmenn eða slá fötu á æfingasvæðinu. Framkvæmdir standa yfir við Flóttamannaveg og því er hjáleið í gegnum Urriðaholt til að komast á golfsvæðið. Við minnum fólk á að keyra varlega í gegnum hverfið þar sem börn eru við leik, en borið hefur á hraðakstri skv. íbúum. Framkvæmdum við veginn á að ljúka 15. maí og við stefnum á opnun Urriðavallar og Ljúflings laugardaginn 16. maí – en til þess þurfum við að hafa veðrið með okkur í liði.
Völlurinn kemur ágætlega undan vetri en kuldakast þessa dagana er lítið að hjálpa vallarstarfsmönnum. Næturfrost fór niður í -5 gráður aðfararnótt laugardags og aftur síðastliðna nótt og frost er enn í jörðu víða á vellinum. Ekki hefur enn tekist að hleypa vatni á lagnir á fyrri níu holum vallarins en í meðalári er vatni hleypt á kerfið í kringum Sumardaginn fyrsta. Veðurspáin boðar ekki hlýindi fyrr en um helgi skv. langtímaspá.
Flatir koma ágætlega undan vetri en þó eru flatir á holum 3, 4 og 7 á eftir öðrum í vexti. Vonandi taka þær flatir hratt við sér þegar það fer að hlýna aftur en fyrsti sláttur var í dag.
Allur gróður er almennt seinn að taka við sér en við metum ástand vallarsins um/yfir meðallagi ef horft er til síðustu ára og bindum vonir við það að geta leikið golf á virkilega góðum Urriðavelli í sumar.
Kylfingar munu verða varir við smá röskun á 2. braut en starfsmenn eru að grafa fyrir rafmagni sem sótt verður í tengiskúr við gamla skátaskálann. Þegar verkinu er lokið munu róbótar sjá um allan slátt á brautum og karga á fyrstu 11 holum vallarsins og lítið mun vanta upp á að loka hringnum alveg.
Töluverðar framkvæmdir hafa verið á Lærlingi, æfingasvæðinu okkar. Þeim mun ljúka að mestu í vikunni en æfingasvæðið mun verða lokað frameftir degi á fimmtudag eins og lesa má um hér að neðan. Lokahnykkurinn verða svo nýjar mottur í alla bása en þær detta í hús öðru hvoru megin við komandi helgi. Alls hefur verið framkvæmt fyrir um 8 milljónir á æfingasvæðinu þegar verkinu er lokið.
Kylfingar munu upplifa breytingar í golfskálanum við opnum. Salerni hafa verið tekin í gegn, ný lýsing sett upp í sal og nýtt hljóðkerfi tekið í notkun. Nýtt veitingafólk tekur á móti gestum við opnun en það eru hjónin Alfreð og Eva Björk. Þau ætla að kynna sig sérstaklega á Kvennakvöldinu á miðvikudaginn en kvöldið er því næst sem uppselt en um 140 Oddskonur hafa keypt sér miða á kvöldið. Það er aldeilis frábær byrjun á sumrinu.
Þau munu svo opna veitingastaðinn 16. maí óháð veðri og vindum.
Sjáumst !
UPPLÝSINGAR UM HVENÆR SKRÁNING Á RÁSTÍMA OPNAR FYRIR KOMANDI TÍMABIL MUNU VERÐA SENDAR ÚT SÍÐAR ÞEGAR LJÓST ER HVERNIG MÁL STANDA MEÐ OPNUN. GERUM RÁÐ FYRIR AÐ ÞAÐ VERÐI C.A. VIKU FYRIR OPNUN.
Fuglahræðan okkar svífur yfir æfingaflatir tignarlega og lætur ekkert nema lognið stoppa sig.

Fyrsti sláttur á 12. holu þetta sumarið.

|