7.9° - S 5 m/s

585 0050

Book Tee Times

Nýr samingur við Garðabæ undirritaður

Golfklúbburinn Oddur og Garðabær hafa undirritað nýjan samstarfssamning til næstu tveggja ára sem markar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu barna- og unglingastarfs klúbbsins. Samningurinn er afar jákvæður fyrir starfsemi Golfklúbbsins Odds og styður sterkt við þá metnaðarfullu þróun sem átt hefur sér stað innan klúbbsins undanfarin ár.

Síðustu fjögur ár hefur Golfklúbburinn Oddur unnið markvisst að því að efla barna- og unglingastarf sitt eftir nokkurt hlé. Áhersla hefur verið lögð á að skapa öflugt og aðgengilegt umhverfi fyrir unga kylfinga þar sem fagleg þjálfun, félagsandi og ánægja fara saman. Sú vinna hefur þegar skilað góðum árangri og hafa börn og ungmenni úr Urriðaholti nýtt sér æfingar og starfsemi klúbbsins í sífellt auknum mæli undanfarin ár.

Með nýjum samstarfssamningi skapast enn betri forsendur til að halda áfram þessari jákvæðu þróun. Samningurinn gerir Golfklúbbnum Oddi kleift að efla þjálfun barna og ungmenna í nærumhverfi þeirra og tryggja að starfsemin fari fram sem næst heimavelli félagsins. Það er mikilvægt bæði fyrir iðkendur og fjölskyldur þeirra að aðstaða og æfingar séu aðgengilegar og tengdar nærumhverfinu.

Aðilar samningsins eru sammála um að vinna áfram markvisst að því að starfsemi félagsins rúmist sem best innan Urriðaholts og í tengslum við golfvöll félagsins. Með því er lögð áhersla á að byggja upp sterkt samfélag í kringum golfíþróttina, efla tengsl ungs fólks við íþróttina og skapa traustan grunn fyrir framtíð golfstarfs í Garðabæ.

< Fleiri fréttir