• 1. Object
  • 2. Object

11.6° - NNV 6.2 m/s

585 0050

Book Tee Times

Opna Jónsmessumótið á laugardag

Opna Jónsmessumót GO fer fram laugardagskvöldið 20. júní næstkomandi. Ræst er út af öllum teigum kl. 20:00 og er leikið inn í nóttina á hinum frábæra Urriðavelli. Áætlað er að leik ljúki um kl. 00:30. Mæting er kl. 19:00.

 

Mótið er punktakeppni með forgjöf í karla og kvennaflokki. Hámarksforgjöf karla er 24 og 28 hjá konum. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í báðum flokkum. Nándarmæling er á öllum par 3 brautum Urriðavallar sem eru 4., 8., 13., og 15. braut.

 

Mótsgjald er 4000 kr og boðið er upp á súpu og brauð að leik loknum.

 

Verðlaun fyrir góðan árangur í þessu móti eru frá Wilson Staff. Skráning í fullum gangi á golf.is

< Fleiri fréttir