• 1. Object
  • 2. Object

4.1° - SSV 6.8 m/s

585 0050

Book Tee Times

OPNUN VALLA GO

Kæru félagsmenn.

Urriðavöllur kemur í heild vel undan vetri í ár, ekkert kal var í brautum í vetur og teigar allir í lagi utan fremsta teigs á 2. braut og 17. braut sem hafa einnig verið gróðurlitlir síðustu sumur og lítil spretta þar í gangi nú. Flatir vallarins koma heilt yfir ágætlega út frá þessum vetri fyrir utan fimm flatir, þar sem kal hindraði vöxt á ákveðnum grastegundum. Þessar flatir eiga það sameiginlegt að vera opnar fyrir norðanátt og staðsettar meira á efri og eldri hluta vallarins.
Mikil vinna hefur verið unnin á síðustu vikum til að koma vallarsvæðinu öllu í leikhæft ástand. Flatir voru allar varðar með dúkum yfir páskana þegar smá kuldakast reið yfir, sáð hefur verið í þrígang í allar flatir og þær sandaðar. Brautir voru valtaðar óvenju snemma þetta árið og vinna við að fjarlægja grjót úr brautum er því langt á veg komin. Þau svæði sem sáð var í eru viðkvæm fyrstu vikurnar í maí en vonandi verður hitastigið nærri 10° + og það ætti að hleypu sprettu í gang.  

Í ljósi ofangreinds ástands og með það í huga að mikil umferð er um völlinn um leið og hér opnar þá hefur stjórn GO og vallarstjóri tekið ákvörðun um að við opnum vellina okkar í tveimur skrefum. Urriðavöllur mun opna laugardaginn 17. maí með opnunarmóti og rástímar fyrir almennt spil verða svo í boði að loknu móti. Ljúflingur mun opna mánudaginn 12. maí klukkan 10:00.

Skráning fyrir rástímabókanir í mótið mun hefjast samhliða almennum rástímabókunum á völlinn þann 13. maí næstkomandi klukkan 10:00. 

Eins og kynnt hefur verið áður höfum við tekið ákvörðun um að breyta skráningarkerfinu þannig að opnir verða 30 dagar til bókunar fram í tímann. Áfram mun félagsmaður hafa rétt á því að hafa fjóra skráða rástíma á þessu 30 daga tímabili, opnað verður einng fyrir bókun samdægurs sem mun ekki telja sem ein af þessum fjórum bókunum svo sigrúmið til bókunar því aðeins ríflegra en áður. Fyrst um sinn verður svæðið eingöngu opið fyrir félagsmenn og styrktaraðila.

 
Þeir félagsmenn sem tóku þátt í hreinsunardegi munu fá forgang í skráningu í opnunarmótið og við munum hafa samband við þá aðila sem skráðu sig á mætingarlistann á hreinsunardegi til að klára þá skráningu. Ef einhverjir heyra ekki frá okkur en telja sig eiga að vera með má senda póst á skrifstofa@oddur.is.
 
Veitingasalan Öðlingur Mathús opnar formlega samhliða opnun Urriðavallar 17. maí og þjónusta verður í boði í golfbúð og afgreiðslu frá mánudeginum 12. maí.
Pútt og vippflatir verða lokaðar fram að 17. maí en við stefnum á að opna formlega nýja gervigras púttflöt við golfskálann sem verður spennandi sjá hvernig mun koma út en vinna við lagningu á því grasi hófst í morgun og miðar verkefninu vel. 

Fram að opnun Urriðavallar geta félagsmenn nýtt sér þá vinavelli GO sem hafa opnað og við höfum samið sérstaklega við Golfklúbb Grindavíkur þar sem félögum GO stendur til boða að spila fyrir einungis 1500 kr. fram að opnun Urriðavallar. Skrifstofustjóri GO hefur verið tíður gestur í vor í Grindavík og getur staðfest að völlurinn er í flottu standi og óhætt að mæla með golfhring í Grindavík. 

 

 

SKRÁNINGARREGLUR RÁSTÍMA

Það er tilvalið að rifja upp skráningarreglur okkar um rástíma svona í upphafi tímabils. Urriðavöllur er takmörkuð auðlind sem mikilvægt er að félagsmenn beri virðingu fyrir.  Afskráningar eru óhemju tíðar og eins og félagsmenn hér og í öðrum klúbbum hafa fundið, er mikið um hamstur á rástímum og afbókanir óhemju tíðar. 
 
Markmið okkar með skráningarreglum og tilmælum er að tryggja jafnræði félagsmanna við rástímabókanir og treystum við á tillitsemi félagsmanna í garð annarra.

Fyrst um sinn mun fyrirvari til afskráninga vera tvær klukkustundir.

Eins og gefur að skilja þarf að vera svigrúm til þess að félagsmaður geti bókað sig á lausan rástíma sem afbókaður er og því þurfa afskráningar að fara fram með góðum fyrirvara. Afskráningar skulu fara fram í gegnum Golfbox, en einnig er hægt að hringja inn afskráningu. 

Ef afbókun berst innan tveggja klukkustunda frá bókuðum rástíma verður skráð no-show á viðkomandi. 

Þeim tilmælum er komið á framfæri við félagsmenn að þeir skrái sig ekki í rástíma nema þeir hafi raunverulega ákveðið að spila, en ekki á forsendu um að þeir vilji eiga möguleika á að spila og sjá svo til samdægurs. 

Við mælumst til þess við félagsmenn að þeir leyfi ekki öðrum að skrá þá í rástíma nema þeir hafi samþykkt að mæta í rástímann sjálfir. Komi til þess að sá sem bókar rástímann sé að nota nöfn annara án þeirra vitneskju, er heimilt að láta þann sem bókar í rástímabann. Misnoti félagsmaður rástíma t.d. með því að láta annan aðila mæta í stað þess sem bókaður er telst það skýrt brot á bókunarreglum og starfsmönnum er heimilt að vísa viðkomandi leikmanni af vellinum, innheimta vallargjöld og banna viðkomandi félagsmann og leikmann frá frekari bókun á rástíma.

Hver félagsmaður getur skráð sjálfan sig og allt að þrjá aðra meðspilara að teknu tilliti til mismunandi tímafresta sem gilda hverju sinni um skráningar félagsmanna og utanfélagsmanna. Félagsmenn í GO hafa 30 daga bókunarrétt en gestir 3 daga. 

  • Fari leikmaður af stað án þess að greiða vallargjald er starfsmönnum heimilt að vísa viðkomandi leikmanni af vellinum, innheimta vallargjöld og banna viðkomandi frá frekari bókun á rástíma. 
 
  • Bókanir rástíma fara fram í gegnum Golfbox samkvæmt þeim skilmálum sem þar gilda. Samkvæmt notendaskilmálum Golfbox er óheimilt að bóka rástíma með hvers kyns hugbúnaði, þ.m.t. svokölluðum skriftum, sem hannaðar hafa verið til að skrá eða auðvelda skráningu rástíma í Golfbox og er til þess fallinn að veita viðkomandi forskot umfram aðra við rástímaskráningu. 
     
  • Við minnum á mikilvægi þess að kylfingar fari ekki á undan sínum ráshóp af stað eða fari af stað á öðrum teig en leikur skal hefjast á. Eins og gefur að skilja eru miklar líkur á því að aðrir hafi ekki möguleika á að nýta sér þennan þá ófullmannaða bókaða tíma og leikhópurinn sem eftir stendur getur verið í leiðinlegum takti ef allir aðrir tímar eru fullbókaðir á undan og eftir. 
  • Eins og gefur að skilja er góð regla að mæta tímalega á svæðið og sérstaklega á teig, mikilvægt er að hefja ekki leik fyrr en rástími viðkomandi leikhóps er kominn til að halda góðum takti á vellinum. 

Staðfesting á rástíma

Áður en leikur er hafinn skal leikmaður staðfesta mætingu í rástíma annað hvort í gegnum Golfbox app eða með skráningar QR kóða sem staðsettur er í anddyri golfskálans. Hægt er að leita aðstoðar í golfverslun GO þar sem starfsfólk er til aðstoðar ef þörf er á. Athugið að kylfingur ber sjálfur ábyrgð á því að sinn rástími sé staðfestur. Hver og einn kylfingur þarf að staðfesta sig. 

ATHUGIÐ AÐ ÓSTAÐFESTUR RÁSTÍMI FELLUR UNDIR NO-SHOW

Viðurlög við brotum:

  • 1 brot, áminning
  • 2 brot, áminning
  • 3 brot, lokað fyrir rástímaskráningu í 7 daga
  • ítrekuð brot fara fyrir aganefnd

Fyrirtæki og styrktaraðilar sem bóka rástíma þurfa að gera grein fyrir sér í afgreiðslu áður en leikur hefst. 

< Fleiri fréttir