8° - NA 6 m/s

585 0050

Book Tee Times

Pistill frá vallarstjóra – Staðan á Urriðavelli – Lok maí 2026

Að baki er kalt vor sem hefur gert opnun Urriðavallar krefjandi að þessu sinni. Vegna mikillar bleytu var völlurinn mjög mjúkur í upphafi tímabils, sem takmarkaði verulega aðgengi vallarstarfsmanna og tækja við undirbúning og uppsetningu. Enn má sjá för í brautum eftir völtun og umferð, en áætlað er að þau hverfi að mestu á næstunni samhliða auknum grasvexti og því að völlurinn „setjist“ betur.
 
Ástand flata og áskoranir í grasvexti
 
Eins og kylfingar hafa tekið eftir vantar enn þéttleika í svörðinn á flötunum, sem rekja má til ástandsins á síðasta ári. Helsta áhyggjuefni mitt núna snúa að miklu álagi – leiknir eru um 300 hringir að jafnaði á dag – samhliða lágu hitastigi og litlum gróanda. Við þessar aðstæður eiga flatirnar á brattan að sækja þar sem grasplantan hefur ekki undan að vinna á skemmdum vegna álagsins.
Með hækkandi hitastigi ætti vöxturinn þó að glæðast, flatirnar að þéttast og nýsáning að spíra.
 
Baráttan við varparsveifinn
 
Aðalverkefnið fram undan er að viðhalda réttum grastegundum í flötunum. En varparsveifurinn er grastegund sem getur spírað undir álagi og við lægra hita stig heldur en vingul og língresi.  Þetta gerir hann á kostnað vinguls og língresis, sem við viljum rækta. Varparsveifurinn hefur lélegt vetrar þol og er gjarn á að deyja yfir veturinn og ef hann verður of ríkjandi eykst hættan á vetrardauða og vítahringurinn heldur áfram.
 
Lausnin er skýr en krefst tíma:

  • Viðamikil og endurtekin yfirsáning með vingli og língresi.
  • Álagsstjórnun á flötum.
  • Skapa aðstæður fyrir æskilega grasstofna.

Þetta verkefni er áskorun á Urriðavelli vegna lítilla flata, kuldapolla og hættu á svellsöfnun á vetrum. Það eru hins vegar einmitt þessar einstöku staðsetningar og krefjandi aðstæður sem gera völlinn okkar jafn skemmtilegan og raun ber vitni þegar vel tekst til.
 
Staða einstakra flata
 
Flatir 3, 4, 7 og hluti af 16. flöt komu illa undan vetri vegna sveppasýkingar sem myndaðist undir svelli síðla vetrar. Svæðin eru hægt og bítandi að jafna sig. Áætlað er að hægt verði að spila inn á þær fljótlega í júní, en nauðsynlegt verður að hvíla þær inn á milli til að vernda svörðinn.
 
Framkvæmdir á vellinum
 
Veturinn og vorið settu áætlanir okkar um nýframkvæmdir nokkuð úr skorðum. Frost sat lengi í jörðu og gerði völlinn of mjúkan fyrir vinnu. Mestallri vinnu við framkvæmdir lýkur þó í júní og stefnt er að því að opna inn á nýjan teig 46 á 17. braut síðla sumars.
Við biðjum kylfinga um sýna ástandinu skilning og þolinmæði á meðan náttúran nær vopnum sínum með hækkandi sól.
 
Með golfkveðju,
Tryggvi

< Fleiri fréttir