27/02/2026

Ástand vallarins og þær áskoranir sem við höfum staðið frammi fyrir síðustu mánuði hafa verið nokkuð krefjandi. Þrátt fyrir tiltölulega mildan vetur hafa miklar sveiflur í tíðarfari haft áhrif á grassvörðinn.
Í desember mynduðust veruleg svellalög á flötunum. Grasplantan þolir nokkrar vikur undir ís áður en súrefnisskortur getur valdið skemmdum, en svellið tók upp um jólin og minnkaði þannig hættuna á kalskemmdum á þeim tímapunkti.
Í kjölfarið fylgdi þurrt og milt tímabil sem við nýttum til að sanda flatirnar. Markmið aðgerðarinnar var að:
Síðustu vikur hafa hins vegar einkennst af miklum kulda, þar sem frost fór niður í allt að 14 gráður. Vegna snjóleysis naut grasvörðurinn engrar einangrunar gegn kuldanum. Þetta froststig er nálægt efri mörkum þess sem helstu grastegundir flatanna þola á þessum árstíma, og því ríkir nokkur óvissa um áhrifin.
Skoðun á flötunum sýnir þó að ástandið er almennt betra en búist var við. Þó er ástæða til að fylgjast sérstaklega vel með flötum 3, 7 og 14. Mikilvægt er að hafa í huga að þær grastegundir sem notaðar eru hér á landi eru harðgerðar og lífseigar, og því eru engar forsendur til að draga neikvæðar ályktanir um ástand vallarins að svo stöddu. Við munum áfram fylgjast náið með framvindunni.
Undirbúningur fyrir næsta sumar
Vegna hagstæðra veðurskilyrða í vetur og snjóleysis hafa framkvæmdir á vellinum gengið áfram án truflana.
Unnið er að uppbyggingu nýs grasteigs í stað pallsins á 17. teig (46). Jarðvegsskiptum er lokið og nú er beðið eftir hentugu færi til að leggja vatnskerfi í teiginn áður en vaxtarlagið verður keyrt inn. Stefnt er að tyrfingu um miðjan maí og að teigurinn opni um mitt sumar.
Undirbúningur er hafinn fyrir lagningu gervigrass fyrir framan æfingarskýlið á Lærlingi. Markmiðið er að auðvelda boltatínslu og draga úr viðhaldi. Einnig hefur borið á því að kylfingar fari út af mottunum og slái af grasinu fyrir framan skýlið, sem getur skapað hættu. Grastorfurnar sem losna við slíkt lenda síðan í tínslu-róbotanum og geta valdið stíflum í boltakerfinu.
Á Ljúflingi er verið að byggja nýja gervigrasteiga með hellulögðu plani og bekkjum á 6., 7. og 9. teig. Þegar þessu verki lýkur verða allir teigar á Ljúflingi komnir með nýtt gervigras. Stefnt er að verklokum í byrjun sumars.

Stærsta verkefni vetrarins er lagning rafmagns- og vatnslagna að 3. og 6. teig, ásamt uppbyggingu nýrra róbotahúsa. Þessi vinna er forsenda þess að hægt sé að halda áfram innleiðingu sláttuóbotakerfis á vellinum. Gert er ráð fyrir að brautir og röff á fyrri níu holunum verði að mestu leyti slegin af róbotum næsta sumar.
Markmiðin eru:
Þó við náum ekki öllum markmiðunum strax á næsta ári byrjum við á uppsetningu slátturóbota á fyrri 9 svona:
Þegar völlurinn verður orðinn full róbota væddur ætti markmiðið um 8 klst sláttuglugga brauta og röffs að nást. Stefnt er að þetta ætti að verða 2028 á Urriðavelli og svo 2029 á Ljúfling.
Kær kveðja,
Tryggvi