• 1. Object
  • 2. Object

7.2° - NNV 3.9 m/s

585 0050

Book Tee Times

Sameiginlegt lið GO/GS Íslandsmeistarar á Íslandsmóti golfklúbba 19 – 21 árs.

Axel Óli Sigurjónsson varð í dag Íslandsmeistari sem fulltrúi GO í sameiginlegri keppnissveit með GS á Íslandsmóti golfklúbba í flokki 19 – 21 árs. Mótið fór fram á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis dagana 2.-4 september. Þetta er í fyrsta sinn sem keppt er í þessum aldursflokki á Íslandsmóti golfklúbba.

Alls tóku 9 lið þátt. Á fyrsta keppnisdegi var leikin höggleikur og röðuðust liðin í riðla eftir árangri í höggleiknum. Leikið var í þremur þriggja liða riðlum. Efstu liðin úr A og B riðli léku um Íslandsmeistaratitilinn, liðin í 2. sæti í A og B riðli léku um bronsverðlaunin og liðin í 3. sæti í A og B leika um 5. sætið.

Sameiginlegt lið GS og GO stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa lagt GM í úrslitum 2,5 – 0,5.
GR varð i þriðja sæti eftir sigur gegn GK 1 í leiknum um bronsverðlaunin.

Við óskum okkar manni til hamingju og að sjálfsögðu allri keppnissveitinni en frá GS voru í liðinu þau Sveinn Andri Sigurpálsson, Logi Sigurðsson og Fjóla Margrét Viðarsdóttir.

ÚrslitKlúbbur
1GS / GO – Golfklúbbur Suðurnesja / Golfklúbburinn Oddur
2GM – Golfklúbbur Mosfellsbæjar
3GR – Golfklúbbur Reykjavíkur
4GK – Golfklúbburinn Keilir 1
5GA – Golfklúbbur Akureyrar
6GK – Golfklúbburinn Keilir 2
7.-8.NK – Nesklúbburinn
7.-8.GKG – Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
9.GOS – Golfklúbbur Selfoss
< Fleiri fréttir