9.1° - SSV 7 m/s

585 0050

Book Tee Times

Skráning opin á Golfleikjanámskeið sumarsins inn á ABLER

Við höfum opnað fyrir skráningu á Golfleikjanámskeið sumarsins í ABLER skráningarkerfinu. 

Hægt er að smella á þennan hlekk hér til að skrá börn á námskeið sumarsins   SKRÁNING HÉR

Námskeiðin eru fyrir nemendur á aldrinum 7 til 12 ára. Námskeiðin eru á virkum dögum frá 9:00 – 12:00.
Í lok námskeiðs spila allir Ljúfling og við endum vikuna á grillveislu. Allir þátttakendur á námskeiðum fá Ljúflingsaðild að loknu námskeiði og geta iðkendur komið og spilað ljúfling eins oft og þau vilja það sem eftir lifir sumars.

Dagsetningar fyrir námskeiðin í sumar eru eftirfarandi:

  1. námskeið: 15. – 19. júní (4 dagar) 
  2. námskeið: 29. júní – 3. júlí (5 dagar)
  3. námskeið: 13. – 17. júlí (5 dagar)
  4. námskeið: 4. – 7. ágúst (4 dagar)
  5. námskeið: 10. – 14. ágúst (5 dagar)

Athugið að námskeiðstími er frá 9:00 – 12:00.
Námskeiðin eru ætluð börnum frá 6 – 12 ára (fædd 2014 – 2019).

Verð:
Verð fyrir 5 daga námskeið er 20.000 kr.
Verð fyrir 4 daga námskeið er 17.500 kr.

Allir þátttakendur fá Ljúflingsaðild að loknu námskeiði. Þá geta iðkendur komið og spilað ljúfling eins oft og þau vilja yfir sumarið.

Markmið golfleikjanámskeiðanna hjá GO

Að kynna golfíþróttina fyrir börnunum og ýta undir áhuga þeirra á því að leggja stund á þessa fjölskylduvænu íþrótt. Farið er í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga og eru leiðbeiningar gjarnan í formi ýmiss konar golfleikja. Einnig verður lögð áhersla á að kynna helstu golfsiði og golfreglur fyrir nemendum. Mikilvægt er að á golfnámskeiðinu séu einnig fjölbreyttir leikir sem efla hreyfiþroska barnanna svo sem samhæfingu, liðleika og jafnvægi, enda eru það mikilvægir þættir í hreyfingum golfsveiflunnar. Forgangsatriði námskeiðanna eru að þau séu örugg, skemmtileg, og að börnin njóti sín og þrói jákvætt viðhorf til golfíþróttarinnar.

Öll börn sem skráð eru á námskeið hjá Oddi fá félagsaðild að Golfklúbbnum Oddi svokallaða ljúflingsaðild og geta haldið áfram að spila allt sumarið á okkar frábæra æfingavelli Ljúflingi.

< Fleiri fréttir