• 1. Object
  • 2. Object

0.9° - NA 1.3 m/s

585 0050

Book Tee Times

Stefnt að opnun Urriðavallar á laugardag

Stefnt er að opnun Urriðavallar laugardaginn 16. maí næstkomandi með opnunarmóti. Völlurinn hefur tekið vel við sér síðustu daga og er Tryggvi Ölver Gunnarsson, vallarstjóri Urriðavallar, bjartsýnn á að hægt verði að opna völlinn um næstu helgi. Hitastig hefur farið hækkandi síðustu daga og spáð er rigningu í vikunni sem mun hafa góð áhrif á Urriðavöll.

Endanleg ákvörðun um opnun vallarins verður tekin í fyrramálið og liggur þá ljóst fyrir hvort opnunarmót GO fer fram á laugardag. Gangi allt eftir hefst skráning í opnunarmótið kl. 13:00 á morgun, miðvikudag. Félagar eru hvattir til að fylgjast vel með vefsíðu GO og samfélagsmiðlum af fréttum af stöðu Urriðavallar.

< Fleiri fréttir