• 1. Object
  • 2. Object

1° - ANA 1.9 m/s

585 0050

Book Tee Times

Suðræn sveifla á kvennakvöldi GO

Það var virkilega góð stemming og troðfullt hús í golfskálanum okkar síðastliðinn föstudag þegar kvennanefnd GO stóð fyrir árlegu kvennakvöldi. Suðræn sveifla var yfirskrift kvöldsins og boðið var upp á glæsilegt hlaðborð veitinga í anda kvöldsins. Um 120 konur mættu og fylltu öll borð hússins, happadrætti og úrslit úr púttmótum vetrarins voru kynnt og leynigestur kvöldsins kom og tók nokkur lög við góðar undirtektir. 

Púttdrottning vetrarins varð hún Björg Kristinsdóttir og Inga Engilbertsdóttir landaði öðru sæti og Salvör Héðinsdóttir því þriðja. 

Myndir af þessu glæsilega kvöldi okkar kvenna má sjá hér í þessu myndasafni.

[Best_Wordpress_Gallery id=”11″ gal_title=”Kvennakvöld GO”]

 

 

< Fleiri fréttir