23/02/2026

Hvernig hljómar sumarstarf á Urriðavelli í sumar?
Garðabær auglýsir fjölbreytt sumarstörf fyrir sumarið 2026 á heimasíðu sinni.
Umsóknarfrestur um sumarstörf hjá Garðabæ er til og með 10. mars og að sjálfsögðu er í boði fyrir ungmenni að sækja um starf á Urriðavelli í gegnum Garðabæ.
Hlekkir á heimasíðu Garðabæjar eru hér fyrir neðan í fréttinni og helstu upplýsingar og tengiliðir.
Í boði eru störf fyrir 17 ára ungmenni (fædd 2009) og 18 ára og eldri einstaklinga. Um er að ræða fjölbreytt sumarstarf á Urriðavelli og hvetjum við áhugasama einstaklinga til að sækja um.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélagsins Hlífar.
Vinnutími er 7 tímar á dag í 7 vikur fyrir 18 ára og eldri (fædd/-ur árið 2008 eða fyrr).
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2026.
Nánari upplýsingar:
Kári Jónsson, íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi
karijo@gardabaer.is
Sími: 525-8548
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélagsins Hlífar. Árgangur 2008 fær 82% af hlutaðeigandi launaflokki.
Vinnutími er 6 tímar á dag í 6 vikur fyrir 17 ára (fædd/-ur árið 2009).
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2026.
Nánari upplýsingar:
Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri
ingath@gardabaer.is
Sími 525 8500