• 1. Object
  • 2. Object

8.5° - SA 1.8 m/s

585 0050

Book Tee Times

Sumarstarf kvennanefndar GO

Það var flott mæting og góð stemming á Vorgleði kvennanefndar þar sem starf sumarsins var kynnt og haldin var golfkviss – spurningarkeppni þar sem þemað var golfregluspurningar. Við höfum ekki fengið fréttir af árangri í þeirri keppni en eflaust hefur það allt verið upp á 10.

Hér fyrir neðan er dagskrá sumarsins og við hvetjum konur í GO til að fylgjast vel með starfi kvennanefndar á facebook síðu þeirra sem uppfærist reglulega.

Eins og undanfarin ár geta konur í GO skráð niður FUGLA og ERNI í kassa í anddyrinu. Reglulega eru dregnar út FUGLAPRINSESSUR og FUGLADROTTNING er dregin út á lokahófinu í september.

SUMARSTARF ODDSKVENNA 2022

17. maí Létt – kvennakvöld

27. maí Vorferð Oddskvenna á Flúðir – Fjögurra manna texas mót

14. júníVinkvennamót GO og GK á Urriðavelli – Tveggja daga mót

15. júní Vinkvennamót GO og GK á Hvaleyrarvelli. Lokahóf og verðlaunaafhending í klúbbakeppni við GK

11. ágúst Ljúflingsmót – gleði og glaumur

10. sept Lokamót og lokahóf
Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar

< Fleiri fréttir