• 1. Object
  • 2. Object

0.1° - A 4.8 m/s

585 0050

Book Tee Times

Sveitum GO vantar húsnæði fyrir sveitakeppnir

Kvennasveit GO sem keppir á Hellishólum í Sveitakeppni eldri kylfinga og drengjasveit GO 15 ára og yngri sem keppir á Strandarvelli á Hellu helgina 13.- 16. ágúst þurfa nauðsynlega á húsnæði að halda. Sveitirnar voru komnar með gistingu sem datt því miður upp fyrir með skömmum fyrirvara.

Við biðlum því til félaga í Golfklúbbnum Oddi sem gætu átt sumarhús á þessum slóðum hvort hægt sé að leigja það umrædda helgi fyrir þessar sveitir. Það myndi létta mikið undir með sveitunum í aðdraganda þessara keppna. Þeir sem gætu lumað á húsnæði er bent á að hafa samband við skrifstofu GO í síma 565-9092 eða tölvupóst á jonjulius@oddur.is

 

< Fleiri fréttir