1.1° - SA 3 m/s

585 0050

Book Tee Times

TAKK FYRIR SUMARIÐ

Langt og gott golfsumar er nú komið á leiðarenda og við höfum lokað Urriðavelli, Ljúflingi og æfingaflötum
frá og með 19. október

Það er vissulega opið þegar þetta er skifað og sent út en enginn bókaður í golf og því má færa góð rök fyrir því að loka svæðinu og leyfa vallarsvæðinu að hvíla sig eftir ágang sumarins. Hér voru spilaðir vel yfir 45.000 hringir í sumar og þá eru ótaldir hringir á Ljúflingi sem var vel nýttur í sumar.      

Æfingasvæðið okkar Lærlingur verður að sjálfsögðu opið í vetur og hægt að kaupa stakar körfur í boltavélinni sjálfri en þeir sem vilja fylla á boltakort þurfa að klára málið á opnunartíma skrifstofu sem er almennt virka daga frá 9 – 16. Gervigras púttvöllurinn verður að sjálfsögðu opinn í haust, vetur og vor og alveg tilvalið að leika sér þar á blíðviðrisdögum ef þeir láta sjá sig. 

Skrifstofan verður lokuð 20 – 29. október en tölvupóstum svarað.

Takk innilega fyrir sumarið.

< Fleiri fréttir