14/05/2026

Kæru félagsmenn, sumarið er handan við hornið.
Urriðavöllur kemur ágætlega undan vetri og að sögn Tryggva vallarstjóra rétt yfir meðallagi síðustu ára. Enn er nokkur bleyta í vellinum á ákveðnum svæðum og erfiður næturfrosta kafli í síðustu viku hægði á öllum undirbúningi og vinnu á vellinum sjálfum. Allt er komið á gott skrið núna og völtum brauta ætti að klárast á næstu dögum enda komandi veðurspá bæði með hlýindi og rigningu sem mun hjálpa.
Þá er það það sem allir vilja lesa og vita….
Við munum opna Ljúfling og æfingaflatir við skálann, laugardaginn 16. maí klukkan 08:00
Við munum opna Urriðavöll, miðvikudaginn 20. maí., rástímar frá 9:00
Rástímaskráning á golfbox opnar laugardaginn 16. maí kl. 12:00.
Golfbílar verða ekki leyfðir fyrst um sinn en ef aðstæður verða hagstæðar verður það endurmetið.
Opnunarmót Urriðavallar verður svo haldið laugardaginn 23. maí.
Þeir sem unnu á Hreinsunardegi fá forgangskráningu í mótið og hafa smá svigrúm á að breyta rástímum áður en mótið opnar fyrir almenna skráningu, klukkan 10:00 mánudaginn 18. maí.