• 1. Object
  • 2. Object

7.6° - SSA 5.7 m/s

585 0050

Book Tee Times

The Lava Challenge nýtt miðnæturmót fyrir erlenda kylfinga

– Golfklúbburinn Keilir og Golfklúbburinn Oddur standa að nýju alþjóðlegu miðnæturgolfmóti í júní –

Golfklúbburinn Keilir og Golfklúbburinn Oddur hafa tekið höndum saman og munu standa fyrir The Lava Challenge Midnight Open golfmótinu sem fram fer á golfvöllum klúbbanna í sumar. Hvaleyrarvöllur í Hafnarfirði og Urriðavöllur í Garðabæ hafa á undanfarin ár verið í hópi fremstu golfvalla landsins.

The Lava Challenge er 36 holu golfmót og munu kylfingar fá tækifæri til að leika í miðnætursólinni en gert ráð fyrir að kylfingar ljúki leik vel eftir miðnætti. Leikinn er einn hringur á hvorum velli og er mótið sérstaklega ætlað erlendum kylfingum sem hafa hug á því heimsækja Ísland og leika golf. Mótið er einnig opið íslenskum kylfingum. Mótið fer fram 20. – 21. júní og er von á fjölda erlenda kylfinga til þátttöku. Stefnt er að því að mótið verði árviss viðburður.

Eftirsótt að leika á hraunvöllum

Nafn mótsins, The Lava Challenge, er dregið til hraunsins sem setur sterkan svip á Hvaleyrarvöll og Urriðavöll. Í gegnum tíðina hafa erlendir kylfingar dásamað upplifun sína af því að leika golf í íslensku hrauni og tilvalið tækifæri fyrir erlenda kylfinga að keppa í alþjóðlegu golfmóti á þessum tveimur völlum þar sem hraunið kemur svo sannarlega við sögu.

„Við erum afar ánægðir með að hefja þetta samstarf með Golfklúbbnum Keili og standa saman að árlegu og alþjóðlegu golfmóti. Það er von okkar að þetta auki áhuga erlendra kylfinga á að heimsækja Ísland. Við finnum fyrir auknum áhuga erlendis frá og ég er þess fullviss að The Lava Challenge miðnæturmótið á eftir að vekja mikla athygli,“ segir Þorvaldur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Odds.

„Það var okkar tilfinning að það væri fyrir löngu orðið tímabært að setja á laggirnar stórt alþjóðlegt miðnæturmót á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Ólafur Þór Það er mikil eftirspurn eftir miðnæturgolfi og við teljum okkur vera að svara ákalli um mót af þessari stærðargráðu. Gæði íslenskra golfvalla eru sífellt að aukast og það kemur erlendum kylfingum á óvart hversu góðir íslenskir golfvellir eru í raun og veru. Það er mjög spennandi sumar í vændum.“

oddurlava

keilirlava

Þorvaldur Þorsteinsson og Ólafur Þór Ágústsson handsala samstarfið.

Þorvaldur Þorsteinsson og Ólafur Þór Ágústsson handsala samstarfið.

< Fleiri fréttir