25/07/2026

Það var hörkuskor í þriðja móti í THule liðakeppni GO síðastliðinn þriðjudag og liðið Með sól í hjarta náði svo sannarlega að stilla strengi liðsmanna vel og liðsskor tveggja bestu skilaði inn 81 punkti sem skilaði nokkuð öruggum 5 punkta sigri á næsta lið. Besta skor dagsins átti Birgitta Ösp Einarsdóttir en hún skilaði inn frábæru 46 punkta skori en hennar liðsmenn náðu sér ekki á flug því dugði þetta “bara” í annað besta liðsskor dagsins en frábær hringur hjá Birgittu.
Nú er komin mynd á bestu þrjú skor flestra liða og eins og málin standa í dag er lið Catorce í efsta sæti en í næstu sætum koma lið, Með sól í hjarta og lið Áttaviltra. Hér fyrir neaðn er stigataflan eftir fyrstu þrjú mótin. Næsta mót fer fram 4. ágúst og þar er leikfyrirkomulagið Greensome, það verður meiriháttar veisla og við sjáum vonandi góða mætingu liða þar.