• 1. Object
  • 2. Object

4.9° - SSA 1.6 m/s

585 0050

Book Tee Times

Tilkynning frá kjörnefnd

Ágætu félagar.

Á síðasta aðalfundi GO voru samþykktar lagabreytingar sem lúta m.a. að stjórnarkjöri í klúbbnum.  Í stað uppstillingarnefndar sem hafði það hlutverk að tilnefna félagsmenn í stjórn klúbbsins, var samþykkt að aðalfundur skuli nú kjósa þriggja manna kjörnefnd sem starfar í eitt ár. Kjörnefnd Golfklúbbs Odds (GO) auglýsir því eftir framboðum til stjórnar klúbbsins fyrir aðalfund hans sem verður haldinn fimmtudaginn 7. desember 2017 kl. 20:00 í golfskála GO.

Á aðalfundi 2017 verður kosið til formanns til eins árs, tveggja stjórnarmanna til tveggja ára, eins stjórnarmanns til eins árs og varamanns til eins árs.

Framboðsfrestur er til 23. nóvember. Þeir sem hafa áhuga á að gefa kost á sér í stjórnarkjör skulu tilkynna framboð sitt til skrifstofu GO, skrifstofa@oddur.is í síðasta lagi tveimur vikum fyrir aðalfund.

Kjörnefnd GO

Guðmundína Ragnarsdóttir

Gunnar Viðar

Kristjana S. Þorsteinsdóttir

< Fleiri fréttir